Í gær var merkilegur dagur. Foreldrar mínir áttu 30 ára brúðkaupsafmæli!! Þau eru búin að ganga saman í gegnum súrt og sætt í heil 30 ár (og meira en það) án þess að verða geðbiluð á hvort öðru. Mér finnst það stórt afrek. Ekki það að foreldrar mínir geri fólk geðveikt hehe, heldur er þetta bara svo roooosalega langur tími. Ég er ekki einu sinni búin að lifa í 30 ár.
Af þessu tilefni fórum við familían út að borða á La Primavera. Sjæse hvað það er góður matur þar. Ég fékk mér spagettí með skelfisk, sem kom alveg hlaðið af humar, risarækju og hörpuskel. Nammi!! (Ekki skamma mig fyrir að svindla, þetta var gott tilefni ;)
Við litla syss gáfum þeim smá gjöf og kort með þar sem við skrifuðum smá texta til þeirra og svo skellti ég með texta sem ég fann í bók sem ég á. Hann er bara svo kjút:
"Maki er manneskja sem kann sönginn í hjarta þínu og getur sungið hann fyrir þig þegar þú gleymir textanum."
Mamma las kortið tvisvar og táraðist í bæði skiptin og fyrir vikið fékk ég smá "skammir" fyrir að græta hana híhíhí.
En talandi um mat, ég get varla hugsað um annað þessa dagana. Það eru komnir svo mikið af góðum og spennandi veitingastöðum.
Sólveig bauð mér á Santa Maria um daginn í tilefni af afmælinu mínu. Algert yndi :D Ég pantaði mér hinn umtalaða súkkulaðikjúlla sem stóðst sko algerlega undir væntingum. Ekkert smá gott.
Ég var líka að prufa Icelandic Fish and Chips fyrir ekki svo löngu og er officially orðin ástfangin af þeim stað. Þau selja ekkert með aukaefnum og búa til sitt eigið gos.
Ég prufaði það svo sjálf í gærkveldi. Ég maukaði hindber og setti sódavatn útí og svei mér þá, það var bara rosalega gott.
Grænn Kostur er líka í miklu uppáhaldi hjá mér og ég reyni að hemja mig að vera ekki alltaf að borða þar.
Hey, kraftaverk, I know!! Ég er búin að venja mig af kóki í fyrsta skipti síðan ég var í 10. bekk. Ég fæ mér alveg kók, en reyni að gera það ekki og ég kaupi það ekki sjálf.
Það er ekkert smá góð tilfinning að vera ekki háð neinu, enda finnst mér það alger vibbi að vera líkamlega háður einhverju.
Í dag var formleg skólasetning Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Þarna eru sætu vinkonurnar og skólasysturnar í nýju skólabúningunum sínum.
Er ég ekki örugglega búin að gera ykkur svöng? ;)
Ég er allavegana farin að fá mér að borða.....
3 ummæli:
Húf ég er sko orðin svöng eftir þetta blogg :) samt var ég að borða kvöldmat fyrir ca 30 min síðan.... :)
Jiii hvað stelpurnar eru sætar :)
knús
ég staðfesti að maturinn á la primavera var góður. Ég fékk sko afganginn!
:D
Viku seinna.. krúttin foreldrar þínir. Til hamingju með þau.
Skemmtilegt að lesa eitthvað hressandi á svona tímum.
Skrifa ummæli