miðvikudagur, 1. október 2008

Úps!

Það er fátt skemmtilegra en að gera sig rækilega að fífli - ja, svona eftir á ;)

Mamma fær í vinnunni sinni að kaupa nesti í Nóatúni fyrir ákveðna upphæð á mánuði, sem vinnan borgar. Þar sem hún veit að ég er á kúpunni þessa dagana þá ákvað hún fyrir nokkrum vikum að vera rosa góð og lét mig fá kortið til að kaupa smá mat.
Snillingurinn ég steingleymdi því auðvitað og fattaði það ekki fyrr en kl 22 í gærkveldi þegar mamma spurði mig hvort ég hefði ekki örugglega notað það. Þá var síðasti dagur mánaðarins og 2 tímar í að inneignin fyrndist.
Mamma sagði mér þá að það væri líka hægt að nota kortið í 10-11 þannig að ég dreif mig útí búð hérna í götunni til að versla fyrir 8000 kall.
Í rólegheitunum týndi ég saman í einu kerruna í búðinni og skammaðist mín smá fyrir vikið. Ég er nú ekki það rík að ég versli vanalega inn í 10-11. Ég alveg hrúgaði í og passaði að ég mundi sko nota allan peninginn.
Jæja, ég kem að kassanum og byrja að raða í poka. Sorry að ég segi það en fólk sem vinnur í 10-11 og Subway eru af annarri dýrategund! Stelpan gapir alveg þegar hún er að renna vörunum í gegn og segir svo:
Sorry, ég verð bara að spyrja, ég vona að ég móðgi þig ekki, en afhverju fórstu ekki bara í Bónus??? :D

Til að gera örugglega meira vesen fór þetta yfir 8000 kall og ég tíni til nokkrar vörur til að draga frá. Jæja, ég er þarna tilbúin með 3 fulla poka og það var byrjuð að myndast þessi fína röð fyrir aftan mig þegar ég rétti stelpunni kortið.
Hún: Eeeh, sorry en þetta kort gildir ekki hér, það gildir í 11-11!!!

Ég óvenju rjóð í kinnum biðst afsökunar og segi að hún hafi þá allavegana nóg að gera í kvöld við að ganga frá eftir mig.
Ég ætla ekki aftur í þessa búð í svona 2 mánuði og þá í dulargervi!!

Kveðja,
Lúðinn

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahahaha er hérna lesstofunni að passa mig að hlæja ekki upphátt.
Ég hefði dáið!!!!!

Nafnlaus sagði...

bwahahahhaahh LÚÐI!!

hvernig brást stelpan við þegar þú ætlaðir þá bara alls ekki að taka neitt??

náðiru í 11/!11?

Sísí

tinnz sagði...

sjitt en vandræðó, hvað ef mr. handsome væri fyrir aftan i röðinni? emmm já, ég veit, ég borga þetta þetta bara!
hálf mánaðarframfærslan farin

Nafnlaus sagði...

AHAHAHAHAHAHAHAHA! Ég hefði dáið. Sjitt.

Nafnlaus sagði...

bwhahaha en neyðarlegt!! :)

Nafnlaus sagði...

vúpsí :(
ég hefði dáið líka sko :(

Nafnlaus sagði...

hahahahaha
ég lenti einu sinni í þessu.. en þá með vörur fyrir 1900 kr og synjun.. það var nú alveg nógu vandró!

sjitt þetta kemur bara fyrir þig:) þú ert snilli..

en fáum við ekki restina af sögunni.. hvernig gekk svo í 11/11?:D

Rakel sagði...

Restin af sögunni...
Ég varð að fara heim að koma barninu í bólið (hún var búin að vera í pössun meðan ég fór út að borða) þannig að ég sendi Sonju í 11-11. Þar var víst rosa lítið úrval þannig að hún keypti ársbyrgðir af jógúrti og sódavatni :D