þriðjudagur, 14. október 2008

5 ár...

Síðan að litla sæta bumban mín hvarf og ég varð samstundis aftur að mjónu....


(Þarna voru 4 vikur í settan dag)

og varð ástfangin af litlum dökkhærðum krumpuling sem ég fékk í fangið.

5 árum seinna er dökkhærði krumpulingurinn orðin ljóshærð ákveðin pæja, sem ætlar að halda sjórængingaafmæli um helgina. :)

Þessar samræður áttu sér stað á leiðinni í skólan í morgun:

D (alveg uppúr þurru): Mamma, ertu skotin í Páli Óskari?
M (skellihlær): Nei, haha, ég er skotin í Kristni.
D: Æj, nei nei, ekkert vera skotin í honum!
M: Nú afhverju ekki?
D: Afþví að hann er ekki kóngur:
M: Ömm, Páll Óskar er ekki heldur kóngur!
D: Nei, ég veit, en hann er prins!

Hvaðan hún fær þessa Pál Óskars dýrkun hef ég ekki hugmynd um :D

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Voðalega varstu sæt bumbulína :) Til hamingju með 5 ára skottuna þína, sjáumst hressar á sunnudaginn!

Alda Rose sagði...

hahaha, hún er best!, TIL HAMINGJU DILJÁ!!!

Nafnlaus sagði...

hahaha hún er svo fyndinn.

Fer þér rosa vel að vera með svona kúlu :)

Nafnlaus sagði...

ekkert smá flott með bumbu :)
Ohh Diljá náttúrulega bara sætust sko :). Hún á svo mikið af skemmtilegum gullkornum
knús á ykkur mæðgur ;)

Rakel sagði...

Það er ágætt að ykkur finnst þetta fara mér vel. Ég verð nefnilega eflaust með álíka stóra bumbu eftir kökuát helgarinnar.

Nafnlaus sagði...

Ohhh gaman að sjá þessar myndir aftur...finnst svo stutt síðan þær voru teknar...tíminn er svo afstæður oft. :)
Diljá er algjör snilli. :)

Nafnlaus sagði...

ég held að næsta barnið þitt eigi eftir að fá rauðhærðu genin þín í öðru veldi. reyndar hef ég áreiðanlegar upplýsingar um að það muni líta svona út:
http://img.dailymail.co.uk/i/pix/2007/09_01/hairbabyMENSYN_468x526.jpg

Rakel sagði...

haha gordjöss krakki!
En næsta barn hvað?? Planaðu bara barneignir fyrir sjálfa þig góða ;)
Ég ætla reyndar að ættleiða eftir svona 10 ár og mér finnst líklegra að það barn eigi eftir að líta einhvern vegin svona út:
http://www.kidsandbibs.in/photocontest/albums/april08/Aaradhya.jpg

Nafnlaus sagði...

haha eitthvað kannastég við þessa dýrkun á Páli Óskari...heyri ekki annað þessa dagana en : mammaaf hverju má ég ekki hitta Pál Óskar, hann er vinur minn :O

Nafnlaus sagði...

já það mun hafa verið ég, Svanhildur sem setti inn síðasta komment