fimmtudagur, 9. október 2008

Varúð!

Það er bráðsmitandi ólétta að ganga. Nú er sko tími til að binda hnút á sprellana og skella tappa í pjöllurnar! Þá er ég sérstaklega að hugsa um sjálfa mig sem er að fara á hausinn útaf öllum þessum barneignum í kringum mig. Þið fáið öll smokka frá mér í jólagjöf! ;)
Annars er engin hætta á að ég sjálf smitist, er ónæm fyrir íslenskri óléttu eftir að ég smitaðist einu sinni af norskri.

Einnig virðist hrikaleg væmni vera að ganga. Ég er nokkuð viss um ónæmni mína við henni, en til öryggis....
Ef ég á einhvern tíman eftir að kalla einhvern betri helminginn minn, viljiði vinsamlegast slá mig hressilega utan undir!!
Hvernig er hægt að tala svona niður til sjálfs sín? Ég ætla sko alltaf að vera JAFN GÓÐUR helmingur og ekkert minna en það! Og hana nú :)

Annars er eina ástæðan fyrir þessu bloggi mínu sú, að ég sit inni á lesstofu og á að vera að læra. Ef einhver hefur rekist á einbeitinguna mína á röltinu þá vil ég vinsamlegast fá hana til baka!

Ok, ég veit að þessi mynd hjálpar ekki við óléttufaraldrinum, en ómæ, ég dýrka þetta barn. Er hægt að vera meira krútt??

Sorry, Freyja, ég stal myndinni, en það er eflaust skárra en að stela barninu sjálfu :) Pant passa ormana þína aftur fljótlega!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha, binda hnút á tippin,, nei plís ekki gera það. nenni ekki að vakna upp við einhver öskur.
en já börn eru ágæt en versta martröð mín er ennþá sú að verða ólétt. það er ekkert að fara að breytast sko.
og þó ég væri alltaf með tappa í pjöllunni myndi það ekki breyta svo miklu, a.m.k. svona 300 daga ársins eða eitthvað :-/

Nafnlaus sagði...

Ooooo sæta sæta stelpan mín!
Ég lofa að smita þig ekki af neinu, reyni það amk ;)

Nafnlaus sagði...

þetta er líka svona í kringum mig!!!! ég er samt ekkert að smitast, hef meiri áhyggjur af jafn góða helmingnum....