Þennan flotta límmiða fann ég á bílnum mínum í morgun. Ég kom seint heim í gær og var með Diljá með mér. Eins og vanalega var ekkert stæði laust þannig að ég þurfti að leggja á grasinu uppvið gangstéttina. Ég var auðvitað rosa ánægð, ekki oft sem ég vinn fyrstu verðlaun í einhverju ;) Svo reyndar tók ég eftir því að restin af bílunum uppá grasi var líka með svona miða. Ég verð greinilega bara að deila fyrsta sætinu.
Ég veit ekki hver er svona fyndinn, en það hlýtur eiginlega að vera FS. Asnalegt samt að þau geri bara ekki eitthvað í bílastæðavandanum í stað þess að tuða í fólki sem getur hvergi annarstaðar lagt.
Þetta er þó skárri en síðast þegar ég fékk miða frá FS, þá var það viðvörun og sagt að næst yrði bílinn minn dreginn. Vá, hvað ég var pirruð. Þá nóttina hafði ég þurft að fara með Diljá á slysó og það var búið að taka stæðið þegar ég kom til baka. Ætlaði sko ekki að leggja í næstu götu 3 um nóttina með barnið nýbúið að fá 5 spor í hausinn.
En já, ég held áfram að leggja bifreið minni á fáránlegan hátt svo lengi sem það eru ekki nógu mörg bílastæði.
Kveðja,
Sigurvegarinn ;)
P.s. Fyrir nákvæmlega 5 árum var ég stödd uppá fæðingardeild ælandi úr mér lungum og lifur en rosa róleg á því. Get ennþá hlegið að því hvað ég var aaaðeins of róleg. Eina vinkona mín sem hafði eignast barn á undan mér hafði verið með hríðar í 2 sólahringa og send tvisvar sinnum heim, þannig að ég bjóst bara við því sama.
Ég hringdi uppá deild ca 9-10 um kvöldið:
Ég: Ég vil bara láta vita að ég kem til ykkar í nótt eða í fyrramálið.
Ljósmóðirin: Já, hvað er langt á milli hjá þér.
Ég: Svona 5 mínútur.
Ljósan: Já, heyrðu viltu ekki bara koma NÚNA! :)
2 ummæli:
hehe alltaf gaman að vinna fyrstu verðlaun :)
Til hamingju með skvísuna þína ;)
bahahahahhaha.. ohh ég hef aldrei fengið svona fínan miða.. er ekki frá því að það votti fyrir smá afbrýsisemi!;)
Skrifa ummæli