Ég hugsa að ég hafi verið glæpamaður í fyrra lífi. Eitthvað hlýt ég allavega að hafa gert til að verðskulda þessa óheppni mína.
Í dag var ég ekki búin að hitta Kristinn í ansi langan tíma (að mér fannst) þannig að ég ákvað að draga hann með mér í lunch. Ég vildi vera sæt fyrir strákinn og fór í sturtu (sem ég geri auðvitað ekki fyrir hvern sem er ;) ) og fór í föt sem voru að koma úr þvotti, þ.á.m. hvíta peysu.
Við ákváðum að hittast á Pizza Hut.
Ég lenti auðvitað á rauðu ljósi á ÖLLUM ljósunum á leiðinni. Þegar við vorum svo nýbyrjuð að borða heyrði ég fruss hljóð og fékk svo rigningu yfir mig. Þá hafði tómatsósuflaska á næsta borði SPRUNGIÐ algerlega uppúr þurru og ég fékk gusuna yfir mig. Það fór ekki á Kristinn, það fór ekki á hina gestina, nei nei, það fór allt á MIG!! Ég er að tala um klessurnar í hárinu á mér, á hvítu peysunni, bolnum og buxunum og á borðinu og gólfinu í kringum mig. Eftir að hafa gapað í smá tíma gátum við ekki annað en hlegið. Þetta var bara of súrt!! Ég tek það fram að það var enginn að nota flöskuna, hún bara stóð þarna á borðinu og sprakk allt í einu. Vírd!!
Samkvæmt Kristni leit ég út eins og ég væri að leika í lélegri hryllingsmynd og var send inná bað að þrífa mig. Ég bleytti toppinn í vaskinum og var svo undir þurrkaranum í dágóðan tíma. Fun :)
Peysan mín var tekin í hreinsun og ég fór heim á stuttermabolnum í grenjandi rigningu og kulda. Á rauðu ljósunum á leiðinni dundaði ég mér við að tína þornaðar klessur úr hárinu mínu.
Ég þakka nú bara fyrir að hafa ekki verið á fyrsta deiti eða eitthvað híhí
En hey, við fengum matinn frítt. Og ég sem var búin að segjast splæsa, "heppin" ég ;)
Þið vitið þá hvaða aðferð þið getið notað til að fá frítt að borða í kreppunni ;)
Þetta minnti mig á þegar ég fór á sama stað með hóp af stelpum. Þjóninn misteig sig eða eitthvað og Soffía greyjið fékk heila pítsu yfir bakið á sér.
Ég var að ljúka við rómantískan dinner með Fanney Björgu frænku. Rosa næs. Ég held að næst á dagskrá sé að fara í sturtu og ná restinni úr hárinu á mér :)
Ég bíð svo bara spennt eftir næsta sem gerist, því eitthvað verður það, það er á hreinu!
Cheers
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Gott þú varst ekki á fyrsta deiti já.
En annars þú veist, bara heppni, annars værirðu eitthvað 2000 kalli fátækari í dag!
tinna
bwahaha....díses...ég lenti einu sinni í svona tómatsósu....sem betur fer bara heima hjá mér....en ég skil þig þegar þú segir út um ALLT!! :)
en kommon Rakel...öllum rauðum ljósum....viltu ekki bara fara segja manninum að þú ert ALLTAF steddí late....ert og hefur alltaf verið....bwahahaha....það kemur ekkért til að breytast....þú hefur alltaf verið soldið lengi að taka þig til elskan mín!!
Anyways....hlakka sjúklega til að sjá þig!
Knúsknús frá Horsens.
Bwahaha iss hann er löngu búinn að fatta það. Og auðvitað lét ég hann aðeins bíða, annað væri ekki ég ;)
En ég lenti sko samt í alvörunni á öllum rauðum ljósum hehe. Þetta var Bústaðarvegurinn elskulegi.
En vá, ég get ekki hætt að hlægja að þessu, bara of súrt :)
Hehehe þú ert svo óheppin að það er ekki eðlilegt ;)
Vonandi að þú verðir heppnari í framtíðinni.
Freyja
Það var óneitanlega sérkennilegt að sjá alltíeinu tómatsósuregn.
minnti mig af einhverjum ástæðum á myndina Tremors með Kevin Bacon. Þar sprengja þeir upp eitthvað skrímsli og það rignir yfir þá einhverju ógeði.
Ég hefði borgað pening fyrir að eiga þetta á myndbandi.
Rakel mín, þú varst alveg mjög jummí með tómatsósu í hárinu, vantaði bara pulsu eða franskar til að dífa í þig.
ok.. þetta með pulsuna og dífa í hljómaði betur í hausnum á mér...
haha
já, spurning kristinn um að tjékka hvort að þeir á pizza hut séu ekki með einhverjar öryggismyndavélar þarna á svæðinu
tinns
OMG hvað þú getur verið óheppin Rakel mín :) 'eg hefði gjarnan viljað vera fluga á vegg þarna :)
Kveðja Karen Á
Skrifa ummæli