Við Sonja skelltum okkur á Janis um daginn. Mjög skemmtileg sýning, mæli með henni. Ég tók sérstakleg eftir súpersæta trommaranum. Ég gerðist meira að segja það djörf að smella á hann kossi eftir sýninguna. Go Rakel!
Daginn eftir skellti ég í eitt stykki Skellibjölluköku handa skvísunum hennar Möggu. Þær voru löngu búnar að ákveða að ég mundi baka fyrir þær, ég bara gat ekki svikið það :)
Fengum okkur svo allar rauðan varalit....drop dead gorgeous alveg...
Þ.á.m. Valla skvís sem að ég var ekki búin að hitta í allavegana hálft ár. Ekkert smá gaman að sjá þig sæta!!!
Um helgina var ég svo á fullu í að baka og halda tvö barnaafmæli. Þegar það var loksins búið svaf ég næstum því samfleytt í 16 tíma. Gjörsamlega búin á því.Litli hjálparbakarinn smakkaði aðeins á hráefnunum, svona til að tékka á gæðunum ;)
Eitt stykki Hello Kitty fyrir skólaafmæli.
Og eitt stykki sjóræningi. Afmælisbarninu fannst hann smábarnalegur og tilkynnti mér að sjóræningjar brosa sko aldrei og eru aldrei glaðir. Ég reyndi að telja henni trú um að þeir séu sko vísta glaðir í hvert skipti sem þeir fá sér romm. Það dugði ekki til, en hún sætti sig samt við hann því þó hann væri smábarnalegur var hann samt flottur. Fjúkket! 3 útskriftarveislur á næsta lau, á ég að djamma eða djamma? ;)
7 ummæli:
Afmæliskökurnar eru geggjað flottar!
flottar kökur, skemmtilegt afmæli, sæt heiða til hamingju með afmælið, janis gaman úff úff man ekki meira :S BESTU kveðjur ;)
uhhh... djamma!!!!
þú ert totally seiv undir vökulum augum uppeldisfræðings;)
Úúú þú ert svo mikill snillingur, einn daginn kennirðu mér að baka meira en bara pönnukökur :Þ
Og svo vil ég fá að koma til þín í mat, panta lax!
Tinnz, þarf ég sem sagt uppeldi á djamminu?? :/ Suss, þú gætir fælt í burtu súpersæta trommarann!
Freyja, ekki málið, alltaf velkomin. Á þetta meira að segja allt saman í ísskápnum. En það er skylda að klára af disknum sínum og ég hlusta ekki á væl um vont kókosbragð! Haaa, Heiða.. ;)
og víst borðaði ég!
ég er bara oft ekkert með mikið magapláss, sérstaklega þegar ég er að fara að detta íða einni sekúntu síðar!
þú ert mega flink
Þetta var ógeð skemmtilegt kvöld! Hef ekki fengið betri hugmynd í lengri tíma, hringja bara í Rakel!
Þú mátt hinsvegar alveg bjóða mér í það sem hinar pæjurnar fúlsuðu við :P
P.s Geðveikar kökur.. hreint út sagt meistaraverk ;)
Kv. Valla
Skrifa ummæli