Ég er núna búin að eyða 2 dýrmætum klukkutímum í að reyna að fá ipodinn minn til að virka á tölvunni minni. Ekki að ganga!!! Arg og pirr og rassgat og píka!!
Þetta fæ ég fyrir að kaupa fake ipod á 1800 kall. En það er þá allavegana ekki mikill peningur tapaður. Ég er samt pirruð!
Eitthvað var verið að kvarta undan bloggleysi. Ástæðan er sú að ég hef engan tíma þessa dagana. Mig vantar nokkra klukkutíma í viðbót í sólahringinn.
Ég er að reyna að samhæfa meira en fullt nám, vinnu, heimili, ofvirkan krakka og kærasta. Ég kalla mig snilling ef ég næ að klára þessa önn með því að ná öllum prófum og verkefnum, vinna nóg til að halda okkur uppi, halda heimilinu frá því að verða að ruslahaug, halda krakkanum nokkurn veginn á mottunni og koma í veg fyrir að kærastinn flýji. Kemur í ljós....
Kann annars einhver ráð til að van-virkja krakkann? ;) Ja, eða kannski halda henni nokkurn veginn normal bara, það væri fínt.
Það er eins gott að þið leiðindafólk sem nennir ekki að kommenta hafið góða afsökun!! ;)
Segir sú sem skoðar engin blogg þessa dagana.
Ég held ég sé með kattahár í hálsinum, nefinu, munninum og eyrunum. En það er allt í lagi, því þeir eru bara OF kjút!!
Bílinn enn bilaður. Ætli það sé ekki bara einhver gaur rúntandi á honum og tímir ekki að skila honum strax?!
Lesstofan lyktar eins og kjafturinn á reykingamanneskju. Veit ekki hver er ábyrgur, en langar helst að senda alla og láta þá busta tennurnar :)
Busy pirringskveðjur á ykkur öll. Over and out.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Ég er ég sama vandamáli með minn ipod og hann var keyptur í bandaríkjunum en þó ekki fake. Skil þetta ekki með þessa podda.
Mér finnst þú ótrúlega dugleg :) og ég veit þú átt eftir að rúlla þessu öllu upp :) ! Því miður hef ég ekki ráð fyrir þig um skottuna þína, spr um að senda hana bara smá stund til mín :) hehe
Hlakka mikið til að sjá þig í nóv ;)
p.s Ipotinn minn er líka með einhverja stæla :(.
Knús og kossar
Hahaha vóó, hresst blogg að lesa svona á mánudagsmorgni.
Komdu með eitthvað jákvætt, þó heimurinn sé raunar að fara til fjandans.
já. það er allt ógeðslega ömurlegt. plús sveittur skallafaggi sem er að blaðra og maður getur ekki lært fyrir honum.
og já, ég er í sama pakkanum, hef svo miklar áhyggjur af monní og öllu þessu að ég hef ekki hugsað um kynlíf í örugglega viku. hvað þá kærasta!
Knús á þig skvís, þú getur þetta!
Ef þú finnur leið til að vanvirkja D láttu mig þá vita þarf að vanvirkja minn krakka þessa dagana.
Skrifa ummæli