Síðustu ár hefur dóttir mín staðið sig svakalega vel í að fá martraðir, öskra uppúr svefni og halda fyrir mér vöku. Það leið loksins hjá fyrir svona ári síðan og nú gerist það bara ca. einu sinni í mánuði og þá miklu vægara en áður.
Núna virðist ég hins vegar tekin við. Síðustu mánuði hefur mig dreymt reglulega hluti sem mig langar að gleyma, helst í gær, en fæ alltaf góða áminningu svona ca. einu sinni í viku.
Ég stend mig samt ekki jafn vel í öskrunum og dóttirin, það toppar hana reyndar enginn.
Þetta er orðin svona freeekar þreytandi. Ég er greinilega eitthvað klikkuð í hausnum þegar ég sef (allavegana meira en vanalega).
Er ekki hægt að fá særingarmann til að særa drauga fortíðar úr hausnum á mér? Eða einhvern töfralækni sem getur gefið mér grænt gúmmelaði til að drekka og kippt þessu í lag. Hvar halda Íslensku nornirnar sig núna?
Ég fann reyndar eina norn í símaskránni, hún býr hérna í Hlíðunum. Spurning um að bjalla í hana.
Eða kannski verð ég bara að hengja upp Dreamcather-inn sem ég keypti fyrir löngu.
Það er samt einn kostur við þetta. Hugsið ykkur hvað ég er himinlifandi þegar ég vakna á morgnana og fatta að ég er enn lifandi!! ;)
Hendi einum Purple and Brown með þessu svona til að lífga uppá þetta :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli