laugardagur, 13. september 2008

Mistery man


Litla systir mín hefur notað skilríkin mín í nokkur ár til þess að komast inná skemmtistaði. Þó við séum sama sem ekkert líkar hefur hún alltaf getað notað þau án vandræða.

Hins vegar hefur hún fengið 2 komment á þau nýlega.

1. Hún var að fara inná Hverfisbarinn og dyravörðurinn skoðaði skilríkin:
"Nei, sorry, þetta getur ekki verið þú, það fer engin 26 ára manneskja hingað inn" :)

VERY true, ég fór einu sinni inná þennan stað fyrir svona 3 árum og hef ekki haft lyst á að fara þangað aftur.

2. Hún var að fara inná Prikið. Dyravörðurinn skoðar skilríkin:
"Eeeh, áttu systir?"
Sonja: Já, hún heitir Sonja og er 19 ára."
Hann: Nú ok, þá er það ekki hún. Æji, mér finnst eins og ég eigi að þekkja Rakel S-dóttir en það ert samt ekki þú!"

Ok, hver er að vinna sem dyravörður á Prikinu og þekkir mig???? Ég er alveg lost hérna sko.

Verð að segja frá þessu eina skipti sem ég fór á Hverfisbarinn. Ég var alveg pisshaugadrukkin eftir alltof mörg Opal skot. Tek það fram að það var algerlega Gosa og Evu Sif að kenna haha! Ég var það drukkin að ég var búin að vera heillengi í bænum þegar ég fattaði að ég var ekki í mínum eigin skóm, heldur hafði Karen klætt mig í sína skó. (yup, ég komst ekki sjálf í skó!)
Eftir að hafa verið þarna inni í smá tíma var ég komin með vægt ógeð, alger kjötmarkaður. Ekkert nema graðir tjokkóar og aflitaðar píkur. Enn einn tjokkóinn kemur að mér....

Graði tjokkóinn: Hæ, hvað heitirðu?
Ég: Hey, lets cut the crap. Komum heim að ríða!!!

Hann missir andlitið og gengur í burtu.

Graðir tjokkóar hafa greinilega ekki húmor! En ég losnaði þó við hann :D

Annars kíkti ég í Ikea í dag og var með lilluna hennar Freyju í bílstólnum. Hitti þá fyrrverandi deit, eða hvað svo sem ég á að kalla hann. Ég hef ekki hitt hann í ca. ár. Það var alveg precious að sjá svipinn á honum þegar hann sá mig með ungabarn. Það kom alveg svona hik á hann og hann kíkti í stólinn, örugglega til að athuga hvort að krakkinn líktist sér haha. Æðislegt moment! Ég gat ekki annað en hlegið og sagt honum að hafa engar áhyggjur, ég ætti ekkert í barninu og svo sannalega ekki hann híhí

Farin að sötra með Sísí og Möggu og dilla mér við Partyzone...
Kv,
Fulli Írinn

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snilldar ráð til að losna við graða aflitaða stráka, ætla prufa það næst og ef það virkar ekki þá...!!

Annars takk fyrir daginn ;)
Freyja

tinnz sagði...

Aflitaðar píkur.. haha, en það eru for real til gellur sem lita á sér pjásuhárin.
Þú ert svo kjút á þessari mynd. Eins og rauðbrúnn kettlingur.

Nafnlaus sagði...

hahah góð :)
sakn sakn frá dk

Nafnlaus sagði...

Hahahaha snilld! Það er líka alveg rétt, engin heilvita 26 ára gömul kona stígur fæti inn á Hverfisbarinn.