mánudagur, 8. september 2008

Afrek helgarinnar

Bakaði tvær afmæliskökur handa Önju Björk sem varð 5 ára á laugardaginn. Sísí stóð sig vel sem aðstoðarbakari þannig að við náðum að gera tvær fyrir eina :)


Ein Hello Kitty kaka og ein Öskubuska í rauðum/bleikum kjól að ósk afmælisbarnsins.


Mér tókst gjörsamlega að rústa á mér bakinu og gat ekki rétt úr því fyrr en daginn eftir og þá með miklum verkjum. Átti ekki verkjatöflu þannig að Tiger Balm reddaði mér í gegnum daginn.
Ég elska Tiger Balm!
EKki skamma mig, ég er búin að ákveða að baka ekki meira. Ja, allavegana ekki fyrr en afmæli prinsessunnar í næsta mánuði hehe.

Um nóttina dreymdi mig að ég væri komin með krabbamein í brisið og drukkið eitrað vatn sem einhver gaf mér. Ég verð að viðurkenna að það var ágætis tilbreyting frá vanalegum martröðunum, en kommon, krabbamein í BRISIÐ! Ég veit ekki einu sinni hvað bris er!

Ástæðan er samt pottþétt sú að ég horfði á heila seríu af Grey´s Anatomy á 2 kvöldum *roðn*.

Samt eitt krípí við þetta. Í draumnum var mér illt á ákveðnum stað og þegar ég gúgglaði bris, þá er það á nákvæmlega staðnum sem mér var illt í draumnum. Vírd!!

Á Laugardaginn tók við heljarinnar kökuát þar sem við bökuðum aðra kökuna úr spelti og sojamjólk svo hún væri Rakel-seiv :D

Því næst gerðist ég einstæð, 3 barna móðir í sólahring. Eins og kom fram í færslunni á undan gekk það ótrúlega vel. Ég var alveg súperdugleg einstæð, 3 barna móðir. Ég stefni samt ekki á að verða það ;)

Ég fékk líka eitthvað svakalegt orkuskot. Fyrir hádegi á Sunnudaginn (ekki Laugardaginn haha) var ég búin að:

  • Skipta á tveim kúkableyjum
  • Baka súkkulaðiköku
  • Fá mömmu og pabba í kaffi
  • Fá Tinnu og Sunnu í kaffi
  • Sópa gólfið tvisvar
  • Baða litlu hjónin
  • Koma lillunni út að sofa í kerru
  • Þrífa klósettið

Ef ég væri nú svona alla daga :D
Hér eru litlu hjónin fyrir baðið, skítug eftir stimpla og andlitsmálningu. Diljá eins og unibrown eftir málninguna híhí.

Verð svo að skella þessum með. Þessar tók ég fyrir næstum því 2 árum þegar þau voru nýorðin 3 ára. Svoooo mikil krútt!Hér eru þau að syngja bossibossibossi :D

6 ummæli:

tinnz sagði...

Ótrúlega flottar kökur. Ég get ekki ýmindað mér flottari köku en Hello Kitty kökuna.
Styð það að þú takir þér breik í þessu. Mesta lagi fyrir ykkur Diljá.

Nafnlaus sagði...

Geggjaðar kökur!!! Hlakka til að sjá þig á miðvikudaginn skvís

tinnz sagði...

P.S. Ég tók eftir stafsetningarvillu þarna hjá þér;)

Nafnlaus sagði...

hvernig væri nú frekar að gera aukabúgrein úr þessum bakstri! Getur selt 4 á mánuði, fullt af fólki (eins og þú veist) sem nennir ekki að baka sjálft eða hefur ekki þína bökunar "talenta" þá ertu bara komin með auka 20.000 kall á mánuði og það skal ég segja þér dugir nú bara fyrir ansi mörgum kokteilum í N.Y. ;) Plús að ég vil koma því á framfæri að það er bara ekkert að því að eignast börn 37 ára og hana nú !!!! :) hehe

Nafnlaus sagði...

það sagði enginn að það væri eitthvað að því....þó ég myndi persónulega ekki nenna því. :)

p.s. æðislegar myndirnar á facebook, alveg gördjöss á þeim, nátturlega alltaf gördjöss!!

....og kökurnar eru bara flottar

Nafnlaus sagði...

Vá þú ert svo mikil snillingur :)
Er enn að monta mig við fólk hvað dóttir mín fékk flotta 1 árs köku :) hehe
Var einmitt að hugsa um hvort þú gætir bakað fyrir mig á næsta ári þegar hún verður 2 ára ;) hihihi