fimmtudagur, 18. september 2008

Til hamingju ég!


Úff, gamla gamla. Þegar foreldrar mínir voru 27 ára voru þau búin að kaupa sér íbúð, gifta sig og eignuðust mig. Ég ætla ekki að gera neitt af þessu ár árinu :)
Nenni engu í dag, enda vaknaði ég kl 6:20 að staðartíma. Ég ætla hins vegar að vera heima á laugardaginn með kökur og kaffi ef ykkur langar að kíkja á mig.
Sé ykkur vonandi þá.
Kv, Ellismellurinn
P.s. Hér getið þið séð hvernig þið lítið út 27 ára ;)

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta er ógeðsleg mynd!

tinnz sagði...

oj rakel!
hættu þessu rugli!
27 ára er ógeðslega kúl tala.
Þú ert að standa þig ógeðslega vel og átt ógeðslega skemmtilegan nágranna!
Við svoleiðis aðstæður verður maður ekki gamall!
Luv
tinnz

Nafnlaus sagði...

til lukku með daginn aftur :) vonandi áttirðu góðan dag! Ógeðsleg mynd by the way! Ein spurning...hvernig er með þetta opna hús? Má ég koma kl 8:15 um morguninn eða er þetta hugsað seinni partinn eða jafnvel um kvöldið? Það nennir engin að hafa opið hús bæði um daginn og kvöldið... eða er það?

Nafnlaus sagði...

Leiðindapúkarnir ykkar, eruði að segja að ég verði ógeðslega þegar ég verð gömul??
Takk samt fyrir afmæliskveðjurnar :)

Opið hús....hmm, segjum á milli 12:00 - 18/19:00. Díll?

Btw, samkvæmt mínum bestu útreikningum eru foreldrar mínir núna nákvæmlega helmingi eldri en ég. Mér finnst þau alls ekki gömul, þannig að ég verð allavegana að tvöfalda aldur minn áður en ég verð gömul. Vúhú! :D

Nafnlaus sagði...

Ohh væri sko alveg til í að kíkja í smá afmæliskaffi :) og smá chatt með "gömlu" nágrönnunum minum :)
Vonandi var dagurinn í gær æði ;)
knúsar
Harpan

Nafnlaus sagði...

úfff ég vona að þeir séu ekki mjög nákvæmir...hahaha....alveg scary mynd sko. :)
Vona að kaffið hafi heppnast vel og þú sért orðin hressari....ég hefði allavega pottþétt viljað vera á staðnum...bæði til að hitta þig og svo get ég alveg viðurkennt það að mig er farið að hlakka til að hitta kæróinn sko. :)

tinnz sagði...

nennirðu að taka þessa mynd út, ég meika ekki lengur að skoða bloggið þitt út af henni