fimmtudagur, 4. september 2008

Innrás paranna



Var að stela þessari mynd af skólavefnum hjá Klifurapanum.
Yup, apinn er officially orðin SKÓLAstelpa!!

Við Tinna erum miður okkar. Það er búið að eyðileggja hæðina okkar. Single mom hæðin okkar hefur verið hertekin af pörum með grenjandi ungabörn!!!
Í gær flutti inn fjórða parið með grenjandi ungabarn, sem þýðir að núna erum við Tinna tvær á móti 4!!
Fyrir nokkrum mánuðum þekkti ég alla á hæðinni minni, nú þekki ég engan nema Tinnu.

Leiðinda pör! Þau heilsa ekki, hafa engan áhuga á að kynnast manni og hvaða not höfum við fyrir grenjandi smákrakkana þeirra?! Ekki leika þau við skólaskvísurnar okkar.

Við Tinna bjuggum til plan til að losna við þau, með hjálp Kristrúnar.

1: Banka hjá þeim og tala um hrikalega silfurskottufaraldurinn hérna.
2: Segja þeim að hafa engar áhyggjur þó þau heyri læti í rörunum hérna, þetta eru bara húsrotturnar.
3: Senda á þau mail og vara við því að úlpugaurinn sé kominn aftur. Vara við því að hann sé stelsjúkur og stórhættulegur.
(Úlpugaurinn er róni sem að var röltandi á göngunum hérna síðustu tvo vetur. Saklaust grey sem vantaði bara stað til að sofa á.)
4. Halda hávært partý í minni íbúð og Tinnu og bjóða bara single liðinu í húsinu. Ja, og Kristrúnu elskunni.
5. Henda Sunnu og Diljá frammá gang í hvert skipti sem þær rífast.
6. Vara þau við að í fyrra hafi verið brotist inn hér á þriðju hæðinni og þau séu alls ekki save.

Við óskum eftir fleiri hugmyndum til að ná völdum á hæðinni okkar aftur. Allar tillögur vel þegnar!

P.s. Geitungar eru sjúkir í mig! Sjúúúúkir!!!
Um leið og ég opna gluggan keppast þeir um að komast hingað inn. Ég var að enda við að skella á nefið á einum.
Um daginn drap ég tvo hérna inni hjá mér og eina silfurskottu. Það var blóðugur dagur í 356.

Kv,
Morðinginn

6 ummæli:

tinnz sagði...

já, ef þetta bregst þá er spurning um að vera bara pínu þolinmóð. samkvæmt tölfræði um samband stelpna í þessu húsi við barnsfeður sína verða a.m.k. þrjú þeirra hætt saman eftir ár, mögulega hálft ár.

Nafnlaus sagði...

Hey það er rétt!
Það hjálpar líka til að þær sjá hvað við höfum það gott. ;)

Nafnlaus sagði...

Já, ég skal koma í partý og syngja jafnvel smá, þá flýja þau pottþétt, allt fyrir single moms. Þær eru bestar :)

Nafnlaus sagði...

Hahaha, þú hefðir átt að flytja upp á Keili! Allt mooorandi í einstæðum mæðrum þar.
Vorum einmitt að tala um það í dag að inntökuskilyrðin í skólann voru örugglega að vera einstæð með helst sem flest börn.

Nafnlaus sagði...

hahah góðar !!
gott plan hjá ykkur, ég myndi pottþétt flyja sko útaf úlpugaurnum heheh. Hann var nú samt ósköp krútt þessi úlpugaur....
Knús
Harpan

Nafnlaus sagði...

Hey ég heimta líka boðskort í parýið þó svo að ég standist ekki inntökuskilyrði, plís? :)
Hehehehe þetta er æðislegur pistill og ég verð að viðurkenna að ég er farin að líta á pör með ungabörn öðrum augum - Bara snilld :)

Kveðja frá parinu með "ungabarn" á 1.hæð :)
Hildigunnur