sunnudagur, 7. september 2008

Ding Dong!



Í augnablikinu klingja eggjastokkarnir í mér hærra en kirkjuklukkur!!!

Klukkan er að verða 8 á laugardagsmorgni. Ég er búin að sofa í kannski klukkutíma, vantar tvöfaldan skammt af koffíni.
En það er allt í lagi, því á gólfinu liggur lítið stelpuskott sem er gjörsamlega búin að bræða mig. Hún bara nagar dót og hjalar. Það er ekki búið að heyrast í henni síðan hún kom hingað um 6 leytið í gær.

Í síðustu viku var ég að knúsa 5 vikna nöfnuna mína hana Aríönnu Rakel. Ó mæ, litla yndi!
Núna er ég ein með 3 börn, 2 lítil hjón sem eru líklega bæði ofvirk og svo 7 mánaða lilluna sem er í fyrsta skipti í næturpössun. Þetta átti að vera skotheld getnaðarvörn fyrir mig næsta árið.

En neibb, þau eru sko ekki að standa sig í því. Litlu hjónin búin að vera rosa góð að leika sér og litla krúttið bara hjalar og brosir sætasta brosi í heimi.

Engar áhyggjur samt, þetta rennur af mér um leið og Diljá tekur næsta frekjukast, næst þegar ég pirra mig á litlu holunni sem ég bý í og næst þegar ég kemst ekki eitthvað því ég hef ekki pössun.
Enda er lífið orðið of ljúft til að klúðra því þegar ég er komin með pabbahelgar og skólabarn :D

Er samt að spá í að spyrja Freyju um uppskriftina að svona draumabarni, væri til í að nota hana eftir segjum svona 10 ár :)

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha 10 ár....elskan mín, þú átt eftir að koma með barn fyrr en það!
Líka 10 ár...kommon...37 ára....ertu þá ekki að fara frekar í Cosmopolitan vinkonuferðir til NY og svona, heldur en að vera að skipta á bleyjum og gefa brjóst??

Nafnlaus sagði...

Heyrðu góða, ertu að halda því fram að ég sé að verða gömul? ;)

Nafnlaus sagði...

við rakel höfum brennt okkur og förum næst súper skynsömu leiðina, eignumst barn eftir master, komnar með stöðugt húsnæði og monní, já og helst kannski karl

Nafnlaus sagði...

Hahaha kl.8 á laugardagsmorgni? Varstu svona þreytt að þú áttaðir þig ekki á því að það var kominn sunnudagur?
Vonandi mættirðu í skólann í dag ;)

Nafnlaus sagði...

Haha úps.

Iss piss karl eða ekki karl. Ég var nú með einn þannig síðast og ég hefði betur gert þetta bara ein.
En almennilegur karl er kostur :)

Nafnlaus sagði...

Ég er að spá í að spyrja Freyju hvort ég megi eiga lilluna hennar. Ætli hún segi já? ;)