mánudagur, 22. september 2008

Klipping



Ég splæsti á mig klippingu í afmælisgjöf handa sjálfri mér. Það sést ekki á myndunum en hárið er síðara þeim megin sem toppurinn er síðari.

Sjálfsmyndatökur eru kjánalegar!!

Ónæmiskerfið mitt er farið í frí. Ég er búin að vera veik í rúma viku. Á þeim tíma er ég búin að fá hita, hausverk, hálsbólgu, kvef, magapest og blöðrubólgu. Er hægt að bæta við þetta eða??
Ég nenni þessu ekki lengur og óska þess vegna eftir ónæmiskerfi í láni þangað til mitt kemur úr fríi. Anyone??

Ég var að panta myndatöku fyrir okkur mæðgur. Jibbí!

Ég dýrka dóttur mína!! Hún er svo mikill snilli! Það sem hún segir og það sem henni dettur í hug að gera. Hún er svo hrikalega hvatvís, stundum bara stari ég á krakkann og get ekki annað en hlegið.

Í gær var hún að fara í bað og fannst það allt í einu voðalega góð hugmynd að vippa sér ofaní með því að sveifla sér í sturtuhenginu. Hengið auðvitað hrundi yfir hana og hún datt í baðið. Meiddi sig ekkert en varð þvílíkt hissa. Ég bara dó úr hlátri. Talandi um að hugsa EKKERT áður en maður framkvæmir.
Hún er líka búin að brjóta neðstu hilluna í ískápshurðinni með því að hanga í henni.

Mig langar svo að setja hana á Tarzan námskeiðið í Egilshöll. Ekkert nema klifur og aftur klifur. En það er um helgar eins og allt annað sem er spennandi.

Nýleg komment frá litla dýrinu:
Ég er alveg bjórköld!
Ertu galþreyttur?
Vá, þetta er galþungt!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

bwahaha...hún er snilli! :)
Jiii þetta er svona móment þar sem maður hlær fyrst og spyr svo hvort hún hafi meitt sig...hahaha, eða þú veist, maður springur án þess að ráða við sig....eða það er allavega ennþá vandamál hjá mér...sællar minningar! :)

Rosa fínt á þér hárið...en það er greinilegt að þú ert búin að vera lasin...því varstu ekki búin að taka eftir því að toppurinn er skakkur??

Rakel sagði...

Bwahahaha Karen ég veit ekki hvort þú ert að grínast eða ekki, en toppurinn á að vera skakkur lúðinn þinn!! :D

Nafnlaus sagði...

haha :)
Rosa flott klipping :)
vonandi fer þér nú að batna, ég er alveg tilbúin að taka fyrir þig smá af þessari flensu, ekki sanngjarnt að þú ein þurfir að taka þetta allt
knús og sakn frá dk