þriðjudagur, 9. september 2008

Frk. Óheppin


Það er grenjandi rigning og ég er í brjálaðri umferð á Miklubrautinni. Klukkan er 16:48, 12 mínútur þangað til ég á að vera búin að sækja Diljá.
Umferðin fer löturhægt áfram þegar bílinn minn drepur allt í einu á sér. Eftir tvær tilraunir til að starta honum læt ég hann rúlla yfir á Taxi akreinina, ekki séns að ná uppá kant.
Tek upp síman og sé að hann er alveg að verða batteríislaus. Jibbí. Byrja á því að hringja í Tinnu til að redda barninu. Hún svarar ekki. Hringi í Heiðu, hún svarar ekki. Hringi aftur í Tinnu sem segist sækja Diljá fyrir mig.
Hringi í pabba, svarar ekki. Hringi í mömmu sem gefur mér símann hjá Vegavernd.
Eftir að hafa látið hringja 4 sinnum út svarar loksins hjá þeim. Ég skil ekki afhverju síminn er ekki enn orðinn batteríislaus. Bíll á leiðinni.

Ekkert í bílnum mínum nema tóm kókdós og dagsgamall opinn banani og ég vil ekki hafa kveikt á útvarpinu uppá rafmagnið að gera. Það er að verða ansi kalt í bílnum þegar aðstoðin kemur 35 mínútum eftir að bíllinn bilaði. Þá voru pirraðir bílstjórar búnir að flauta á mig nokkru sinnum.

Gaurinn nær ekki að starta bílnum. Hringir á dráttarbíl frá Vöku og ég bíð.
Rúmum klukkutíma eftir að bíllinn bilaði labba ég innúr dyrunum heima, köld og 7000 kr. fátækari.
Bíllinn enn bilaður úti á plani.

Hljóðið í viðbörunarljósunum hljómar ennþá í eyrunum á mér.

Ég er að fara í bílatalningu á morgun á engum bíl :/
Eins og það sé ekki nóg, var ég líka að fá 10.000 kr. hraðasekt síðan ég keyrði til Sandgerði á laugardaginn. Kræst, ég var á 97-103, það er 90 km hámarkshraði. Það var þvílík umferð og ég fylgdi umferðinni. Sekta þeir bara alla? Nógu helvíti margir voru á leiðinni á Ljósanótt.

Afhverju þarf ég að vera Frk. Óheppin?
Persónulega finnst mér að það mætti dreifa minni óheppni á nokkra aðila. Ég ætla að leggja fram kvörtun.

Ætla að rölta í 10-11 í rigningunni og kaupa mér dýran kvöldmat, átti eftir að fara í krónuna.
Síðan ætla ég að lifa á hrísgrjónum það sem eftir er mánaðarins því að núna er ég 17.000 kr fátækari fyrir ekki neitt.

Pirr-kveðja á ykkur öll!

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er búin að fatta afhverju það hvílir bölvun á þessum degi hjá mér.
Steinn á afmæli í dag!

Nafnlaus sagði...

Nææææææs! Merktu þennan dag hjá þér svo eftir ár þá geturðu bara verið heima og sleppt honum.

Nafnlaus sagði...

glataður dagur!

þú átt alla mína samúð


*kram*

Nafnlaus sagði...

Já, ok. Hlaut eitthvað að vera.

Unknown sagði...

Verð nú að fá að flissa smá yfir þessum degi. Ég lenti nú líka í því um daginn að vera búin að eyða 15.000 kr. áður en ég náði almennilega að vakna! Borgaði 14.000 krónur fyrir klippingu, rúmar 400 kr. fyrir túrtappa og 300 kr fyrir verkjatöflur (það allra ódýrasta sem ég fann). Komst að því að það er alls ekki ódýrt að vera kona með sítt hár! En í staðinn beilaði ég á hádegismat næstu 3 dagana eftir á, allt í sparnaðarskyni!

Nafnlaus sagði...

Heppnin eltir mig á röndum, fékk EKKI hraðsekt í Hvalfjarðargöngunum síðast, er Ekki að fá ekki Monkey Shoulder viskýi....(s.s munaði engu að ég fengi það ekki, en fæ..wúhúúú..beint frá Skotlandi.)Og loka heppnin var að ég skuldaði minna en mig minnti á Mastercardin...þvílík heppni.

Nafnlaus sagði...

STóRT knús á þig
ömulegir svona dagar þegar einhvernveginn allt er á móti manni

tinnz sagði...

ohh!! mig vantar svo að slúðra við þig.....

Nafnlaus sagði...

ohhhh helvítið hann steinn!

færð alla mína samúð... ég er enn með óborgaða hraðasekt úr hvalfjarðagöngum síðan í byrjun sumar.. fruss!!

knús