fimmtudagur, 31. júlí 2008

I´d like to buy the world a coke...

Mér líður nákvæmlega svona:


Mig vantar koooóóók!!!! Samt sko bara drykkinn ekki duftið. Ég tel mínútunar niður í kaffi svo ég geti rúllað á rafmagnsbílnum í sjoppuna. Ég gæti sagt að þetta sé orðið vandamál, en þá væri ég að ljúga. Þetta varð nefnilega að vandamáli fyrir ca. 10 árum!!! :S

Hæ, ég heitir Rakel og ég er kókisti.
Hæææ Rakel.

Talandi samt um fíkniefni. Ég var að skipta á milli stöðva á leiðinni heim úr vinnunni í gær og datt inná umræðu á X-inu um hvaða fíkniefni ætti að taka með sér til eyja. Þetta voru einhverjir tveir dúddar, Frosti og Erpur eða einhverjir og fólk að hringja inn og segja hvaða fíkniefni þau ætli að taka með sér og hvað þau kosta. Þeir voru víst að tala um þetta í framhaldi af því að lögreglan segir að allt verði á floti í fíkniefnum í eyjum.
Ég verð að viðurkenna að mér blöskraði smá. Auðvitað er það staðreynd að það verða ( og eru) fíkniefni útum allt og ekkert að því að ræða um það opinskátt. En mér fannst þeir tveir tala um þetta eins og sjálfsagðan hlut. Eins og það væri bara allt í lagi og hið eðlilegasta mál að neyta fíkniefna.
Eftir að hafa horft á nokkra nákomna og fleiri rústa lífi sínu og annarra útaf fíkniefnum þá varð ég bara pirruð að hlusta á þetta.

Tuðandi Kókistinn

5 ummæli:

ynja sagði...

ohhh láttu mig þekkja það...kók í gleri...eða ísköld í dós...uhmm! :)

Sammála líka með dópistaumræðurnar, það vita allir að það eru fíkniefni á öllum útihátíðum....en þetta er soldið yfir línunna.

Hafðu það gott um helgina sæta mín.
Knús og kossar.

Nafnlaus sagði...

Það jafnast ekkert á við kók í dós! Ég er háðari kók í dós mun meira en nokkru öðru kóki :)

Takk takk og sömuleiðis! ;)

Nafnlaus sagði...

Kók er ofmetið :þ

Nafnlaus sagði...

Vertu úti vinan. Sprite fólk eins og þú hefur ekki rétt á að kommenta!

Unknown sagði...

Pepsi er betra en kók