Ég sá þetta á blogginu hennar Sjafnar og varð auðvitað að prufa.
Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust rare, medium rare, medium og well done, værir þú "well done". Jafnvel svo vel steikt að erfitt væri að sjá muninn á þér og skósóla. En velsteikta dramadrottningin kærir sig ekki um óvæntar uppákomur eins og matareitrun. Hún vill að hlutirnir séu fyrirsjáanlegir og skipulagðir. Hún bleytir því einfaldlega upp í þurrum borgaranum með fullt af kokteilsósu.
Miklir leiðtogahæfileikar búa í vel steiktu dramadrottningunni. Hún er mjög yfirveguð og rökföst en einnig þrjósk.
Í raun verður nánast aldrei dramatískra eiginleika vart í fari vel steiktu dramadrottningarinnar. Ætli þeir hafi ekki drepist við steikingu. Það er þó tvennt sem getur komið hinni vel steiktu úr jafnvægi. Annars vegar hrár fiskur. Hins vegar þátturinn Frægir í form. Hún er enn að leita að fræga fólkinu í þættinum.
Er ég svona boring?? Ég meira að segja prufaði að breyta einu svarinu mínu, sem ég var ekki alveg viss um hvernig ég ætti að svara, en samt fékk ég þessa niðurstöðu.
Mér finnst hrár fiskur reyndar góður, en ég verð nú að játa þetta síðara. Er ekki fræg fyrir að vera updeituð í slúðri um fræga fólkið hehe. Katrín varð einu sinni pirruð á að tala við mig og ég bjóst eiginlega við þvi að hún mundi rjúka útí búð og splæsa á mig eintaki af séð og heyrt híhí :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
þú ert kannski vel steikt en dramadrottning? hmm...
ohhh svo fínt að vera vel steikt dramadrottning...:)
allar stelpur eru dramadrottningar.. bara mismikið.. eða mislítið..!
strákar eru það líka.. viðurkenna það bara ekki... halda því í sér eins og þeir séu að fá drullu..:)
Hef ekki fengið dramakast eftir að ég kynntist undralyfinu Imodium sem stöðvar alla drullu. Mæli með því fyrir alla karlmenn sem eru réttu meginn við stakkettið.
500 kall handa þeim sem getur gefið mér þýðingu á kommentinu hans Davíðs!
En ég er svo sannalega Immodium fan, enda bjargaði það ófáum rössum í Tælandi ;)
Skrifa ummæli