Ég stal þessu myndbandi af blogginu hans Kristins. Ég mæli með að kíkja á það, enda bæði áhugaverður og mjög skemmtilegur fyrirlestur um hvernig menntakerfi drepa sköpunargáfur barna.
Þegar ég horfði á þetta myndband fékk ég smá áminningu og mér fannst það líka hughreystandi.
Eins og flestir vita er litla skottið mitt með ADHD. Við höfum báðar þurft að finna ansi mikið fyrir því, eiginlega frá því hún var ungabarn og ég viðurkenni að það hefur oft verið hrikalega erfitt.
Þess vegna hef ég staðið sjálfa mig að því að detta niður í neikvæðni. Ég hef strax fundið fyrir kvíða fyrir því að Diljá byrji í skóla. Sé oft fyrir mér kennara garga á hana að sitja kyrr og hætta að trufla hin börnin og ég er hrædd um að skólinn eigi eftir að brjóta niður sjálfsmynd hennar eins og maður hefur svo oft heyrt um.
Það sem ég gleymi oft er að líta á jákvæðu hliðiná á málinu. ADHD þarf ekki bara að vera kvöð heldur getur það líka verið gjöf. Það hafa meira að segja verið gefnar út bækur erlendis, sem fjalla um þá gjöf sem ADHD getur verið.
Börn (og margir fullorðnir) með ADHD hafa oft ótrúlega sköpunargáfu, miklu meiri orku en við hin og oft ótrúlega þrautseigju.
Ég verð líka að taka það fram hvað ég er rosalega fegin að það séu til Hjallastefnuskólar núna, sem taka börnum eins og þau eru, ekki eins og þau "eiga að vera". Enda tek ég það ekki í mál annað en hún fari í þannig skóla. Breytingin á barninu var nefnilega rosalega mikil þegar ég lét hana skipta um leikskóla.
Sem dæmi má nefna að barni sem hafði varla kunnað að teikna Óla Prik, sýndi mér fljótlega mynd sem hún hafði teiknað af bónda sem var að gráta því hann var að breytast í apa. Og þarna á myndinni var karl með apaeyru og tár niður í gólf.
Þessi mynd er alveg í uppáhaldi hjá mér því hún sýnir líka hvað Diljá er hugmyndarík. Enda er ég farin að kalla hana stundum Lísu í Undralandi því hún er oft í eigin furðulega heimi :)
Hér er mynd af henni í leikskólanum þegar hópurinn hennar bjuggu sér til fartölvur og fóru í skrifstofuleik:
Allavegana, pointið mitt er.....hvað með það þó að Diljá eigi kannski ekki eftir að ganga vel í skóla. Ég verð að vera meðvituð um að gera ekki of miklar kröfur til hennar, heldur aðstoða hana við að finna hvar hennar sterku hliðar liggja og nýta sér það.
Nú er hún búin að vera tvo vetur í ballett, en við ætlum þennan vetur að prufa námskeið í Kramhúsinu sem heitir Tónlist og Hreyfing. Ég held það sé rosa skemmtilegt.
Það sem er svo hughreystandi, er allt þetta fólk sem er með ADHD og hefur samt náð svo langt á sínu sviði.
Í myndbandinu tekur hann dæmi um Gilian Lynne. Hún gat aldrei sitið kyrr í skóla, en fór í dansskóla. Hún varð atvinnudansari í ballett og einnig danshöfundur. Hún samdi dansinn í Cats og Phantom of the Opera.
Jón Gnarr var líka endalaust skammaður af kennurum sínum í skóla. Hann fékk að heyra hvað hann var ómögulegur og hann kæmist ekki langt á fíflalátum. Annað hefur nú komið á daginn :D
Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps er með ADHD. Hann er ekki nema 23 ára og hefur nú þegar unnið 14 Ólympíugull.
Og að lokum maðurinn sem þjóðin elskar þessa dagana, Björgvin Páll. Hann var það slæmur sem barn að hann fór tímabundið inná BUGL. Hann fann sig í handboltanum og stendur sig svona líka vel :DBtw, ég er viss um að hann sé óskilgetinn bróðir Sjafnar, einhver svaka svipur með þeim!!
Auðvitað skiptir líka uppeldið máli og ég geri mér grein fyrir að þetta verður alltaf vinna. En ég sé líka daglega hvaða hæfileika litla skottið mitt hefur og ég vona svo sannalega að hún nái að nýta þá í framtíðinni.
5 ummæli:
hahahaha já ég þarf að fara að yfirheyra pabba.. klárt mál...;)
en Diljá er yndisleg stelpa og á bara það besta skilið.. og þú ert góð og dugleg mamma.. hún er heppin að eiga þig:*
ég er ógisliga sammála, gott meðig.
Þú ert nátturlega bara frábær mamma!!
Knús Karen frænka
Góður pistill :)
Diljá er algjör snillingur og ég held hún eigi eftir að plumma sig vel í lífinu hvort sem hún á eftir að vera snilli í skóla eða einhverju öðru :)
Knús á ykkar mæðgur - sakna ykkar alveg fullt
HArpan
var spæld að komast að því að bróðir hennar sjafnar á kærustu, ætlaði að bjóða honum í heimsókn til að skora hjá mér. nehhh... segi sona!
Skrifa ummæli