Ef það væri til keppni um mestu morgunfýluna þá mundi litla skrípið mitt vinna með stæl!!
Þetta var um 7 í morgun:
Ég: Góða daginn litla letidýr, kominn tími til að vakna!
D: AAAaarrrg, ég er ekkert letidýr! Þú ert alltaf að stríða mér! Ég nenni ekkert að vera barnið þitt lengur!
Nokkrum mínútum seinna:
Ég: Jæja, nú skaltu koma fram úr.
D: Oh, láttu mig vera, ég nenni ekkert að vera barnið þitt. Ég á tvö hús, eitt hjá þér og eitt hjá pabba. Ég get alveg bara átt heima hjá pabba og verið bara barnið hans og ég get bara spurt Ingu hvort hún vill vera mamma mín! Þú getur bara fundið þér mann og eignast nýtt barn!
Úff hvað það var erfitt að halda í sér hlátrinum, en það hefði sko vakið skrímsli hehe.
Spurning um að draga hana öfuga úr rúminu í fyrramálið með látum og athuga hvernig viðbrögðin verða þá.
Það er sko alveg á hreinu að hún fær þetta ekki frá mér, þó Eva Sif hafi kannski aðra sögu að segja ... *hóst*. En auðvitað fær barnið alla galla frá pabba sínum, það veit hver heilvita maður! ;)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Hún er greinilega komin á svokallaða ,,6 ára gelgju" !
Skulum bara vona að þá dreifist þetta betur og hún verði fyrir vikið ,,vægari gelgja" þegar hún verður 15. :)
Ég er samt ekkert sérlega vongóð. Hún er nefnilega búin með 1, 2, 3 og 4 ára gelgju og það hefur eiginlega farið bara versnandi með árunum.
En ég sendi hana bara í sveit um 10 ára ;)
hahaha...einmitt það sem ég hugsaði....vá...ein komin á gelgjuna snemma!! :)
hehehe já hún hefur nú ekki langt að sækja þessa morgungleði sína...p.s. ég er nú ekki eina vitnið Katrín þekkir þetta nú líka frá "pabba" hennar frá því í Búdapest ;)
Eva Sif, þú ert greinilega ekki heilvita maður!!
totally. Máni er nánast fullkominn fyrir utan gallana sem erfðir voru frá pabba sínum. hahahahaha
Skrifa ummæli