Það er alveg óþolandi að mæta grænmygluð og lasin til læknis og lenda á ungum Dr. Handsome. Í gær lenti ég einmitt í því. Ég mætti þarna úfin og ógeðsleg búin að vera með mígreni í 3 daga, flökurt og alltof heitt og bjóst við að hitta einhvern Dr. Boring eins og vanalega. Nei nei, þá var þessi svaka myndalegi afleysingalæknir, þannig að ofaná mygluna varð ég líka vandræðaleg.
Ég þakkaði þó bara fyrir að vera bara með mígreni en ekki með sveppasýkingu á tánum eða eitthvað álíka sexý.
Og ekki segja mér að þið kannist ekki við þetta ;) Ég veit að ein vinkona mín hætti við að flassa vörtu einu sinni og fann sér eitthvað annað tilefni fyrir læknisheimsókninni híhíhí.
Versta Dr. Handsome tilfellið sem ég hef lent í er þegar ég mætti í undirbúning fyrir aðgerðina í febrúar. Ég var búin að vera þarna uppfrá í ca. 2 tíma og búin að tala við hjúkku og einhvern lækni og var orðin ansi leið á biðinni eftir svæfingalækni. Þegar loksins var komið að mér blasti við þessi myndalegi ungi strákur og ég hresstist nú öll við það ;) Það er að segja þangað til hann byrjaði að spyrja mig spurninga sem voru aaaaðeins of persónulegar.
Hann toppaði það svo með því að segja:
Og hvernig eru hægðir??
Hvernig á maður að svara þessari spurningu OG halda kúlinu?!?!?!
Spurning um að veita bara ljótu fólki inngöngu í læknanám....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Týpískt! Ég hef bara einu sinni hitt á sætan lækni svo stéttin er ekkert morandi í þeim.
Ég hef svo oft lent í þessu..
Er þetta samt ekki svolítið eitthvað... hot að láta ungan lækni (þó hann sé bara venjó við fyrstu sýn) skoða sig og svo bara lækna allt. Eins og augnlæknirinn um jólin sem bjargaði mér frá blindu og að klúðra BA ritgerðinni, hann varð allt í einu heví hot og ég fór að ýminda mér allskonar þegar hann lét mig fá númerið sitt og við vorum ein í öllu húsinu þarna á jóladag.. Ég meina.. hvað átti ég að gera annað en ýminda mér þegar ég varð að vera með augun lokuð í 3 sólarhringa!
ójá...
Hahaha, ég veit nú ekki betur en þú fantaserir alla daga, hvort sem augun eru lokuð eða ekki :D
hey var sæti læknirinn útá nesi??
danskur??
þá hef ég lent hjá honum... með magavesen.. og hann spurði mig hvenær ég kúkaði síðast!! og hvernig hægðirnar eru hjá mér!!! sjitt mig langaði til að deyja!!!:(
hann er bara of hot!
Jább, úti á nesi en íslenskur gaur.
Magga, þú gerir annað hvort of miklar kröfur eða ferð ekki á "réttu" staðina ;)
Skrifa ummæli