Úff, hvað ég er alveg að missa sjálfsstjórnina núna. Núna er ég ekki búin að borða glúten í næstum tvær vikur. það hefur gengið svona upp og ofan. Stundum held ég að ég endi eins og anorexíusjúklingur því mér finnst ég hafa svo lítinn tíma til að elda og það er svo erfitt að finna eitthvað "til að grípa í" sem er ekki með hveiti. En þetta er allt að koma.
NEMA, í dag er haugur af Sóma samlokum, langlokum og kjötlokum á eldhúsborðinu hér í vinnunni sem við megum borða, því þetta er afgangur frá sjoppunni sem var að hætta. Ok, ég stóðst það, en sat samt slefandi í kaffinu áðan og horfði á hina borða.
Núna var ég að frétta að það verða pantaðar pítsur á morgun og horft á leikinn, sem er auðvitað bara gaman. Topp vinnustaður!! :D
En hvernig á ég að geta horft á alla borða pítsur og fá mér ekki neitt?!?!
Buhuuuuu
Ég er í sjálfsvorkun núna!! Og ég er líka ógeðslega brjálæðislega svöng því ég komst ekki í búð í gær og ég á ekkert nema eintómt poppkex í vinnunni.
PIRR
Kveðja,
Kvartarinn
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
já, sammála, eins og með núðlurnar þá sýgur poppkex svona til lengdar :-/
Ef ég ætti eitthvað slíkt þá myndi ég svo nauðsynlega þurfa að nota það sjálf að ég hefði ekkert auka.
En þú ert dugleg! Go girl!
Hey já, ég er mega stolt. Ég er enn ekkert búin að svindla :D og ætla að halda því áfram hehe
Skrifa ummæli