Tvær stelpur flytja í íbúðir sem eru hlið við hlið og verða góðar vinkonur. Önnur stelpan byrjar að deita strák sem býr hinu megin í borginni. Ári seinna fer hin stelpan að deita strák sem býr einnig hinu megin í borginni. Svo kemur í ljós að sá strákur býr fyrir neðan hinn strákinn. Því eru stelpurnar í samliggjandi íbúðum hvort sem þær eru heima hjá sér eða hjá strákunum.
Ok, ég veit að Reykjavík er ekki stór, en hverjar eru samt líkurnar á þessu!?!?!
Þetta tókst okkur Tinnu, en okkur tekst aldrei að vinna í lottó!!
Mig langar til að vinna í lottó!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
já, væri gaman að vita hverjar líkurnar eru á að samliggjandiíbúða-grannar séu að kela við aðra samliggjandiíbúða-granna. Búa ekki um 130.000 í Reykjavík? Og hvað eru margar samliggjandi íbúðir í Reykjavík? Skilurðu... Sem gerir 130.000 sinnum 130.000 í öðru veldi deilt í tvo... eða eitthvað......
Þvílík tilviljun! Hahaha.
Ég myndi samt frekar vilja vinna í lottó.
...og við sem vorum báðar í fellahverfi (eða a.m.k. mjög nálægt því) í síðustu viku, hefðum frekar átt að skella okkur í sjoppuna í gettóinu og ná í miðann á undan tælendingunm heldur en að gera það sem við vorum að gera.
en jæja.. allavega gott að peningarnir fóru á góðan stað... gott það var ekki geiri í maxim allavega.
Já, reiknaðu þetta Tinna. Þú ert orðin svo mikill sjéní í aðferðafræðinni ;)
En játs, ég mundi sko frekar vilja vinna í lottó, enda ekkert point í þessu. Höfum aldrei farið samferða.
Skrifa ummæli