Fyrir svona ári síðan var toppurinn. Þá var 3 hæðin single mom hæðin. Ég, Tinna, Heiða, Gréta og Ásdís allar í röð og allar með stelpur á svipuðum aldri, nema Greta með prinsinn á hæðinni. Svo voru Sjöfn, Davíð, Kristrún, Harpa og fleiri annar staðar í húsinu. Núna eru bara ég, Tinna og Krisrún eftir og Ásdís sem stingur okkur af í lok mánaðarins. En svo auðvitað nokkrir sem ég þekki ekki jafn vel. Þessa dagana eru að hrúgast inn fullt af nýjum nágrönnum og ég er bara ekkert að fíla það. Single mom hæðin er búin að breytast í parahæð með smábörn og við Tinna erum lónlí.
OH, stelpur (og strákur), ég sakna ykkar svo!!!!
Ég sakna:
Ég sakna:
-allra slúðurkvöldanna á lesstofunni þegar við áttum að vera að læra.
-að vera allar á lesstofunni og acctually vera að læra. Það hélt mér þar lengur :)
- að elda og borða saman.
- að smitast af hollustunni hennar Gretu
- að fá spagettí og pulsur a la Davíð, sérstaklega í þynnkunni.
- geta alltaf reddað mér kóki hjá einhverjum ef ég lenti í neyð
- borða með ykkur köku seint á kvöldin og blaðra framá nótt
- horfa á Seinfeld með Davíð (við eigum btw 2 seríur eftir!)
- skiptast á fötum við Heiðu
- passa fyrir hvor aðra
- sötra saman hvítvín og tala um stráka
- hafa alltaf félagsskap
En eitt sem ég sakna og við verðum að viðhalda eru grannadjömmin okkar!!!
Hér kemur smá sería tileinkuð mínum kæru grönnum og okkar frábæru stundum saman.
3. hæðar partý mínús Greta.

Svona verður maður brjálæðislega sexý eftir all marga Rasberry Mohjito

Skemmtinefndin og skemmtilegasta fólkið í húspartý
Við Sjöbba ferskar eftir næturlanga drykkju og búnar að lauma okkur undir sæng hjá einum grannanum

Við Davíð, grannasvipur með okkur ;)




6 ummæli:
"Prinson Break og höfðingja maraþonið" mun líka sitja eftir í top ten listanum hjá mér;)
svæsnustu slúðurkvöld sögunnar á lesstofunni... good times.., þau eru nú enn djúsí, deyja ekkert út fyrr en við verðum farnar;)
ohhhhh sakn og grát!:(
sérstaklega sakna ég lesstofu kvöldanna!! vá það sem ekki var rætt þar... hahaha
bestasti tími ever er án efa á stúdó.. en það er líka voða gott að vera hér.. koma svo, fá íbúð:D
Er ekki stemming fyrir húspartýi fyrir íbúa og velunnara Hjónagarðanna t.d. fyrstu helgina í okt?? Skyldumæting fyrir allt gamla góða gengið;)
jeijjj
P.S. Eru allir búnir að gleyma? http://www.hjonagardar.myphotoalbum.com/
Er með lykilorðið ef einhver vill bæta við myndum eða eitthvað....
Já, Prison Break tímabilið var æði! Ég verð nú samt að viðurkenna að ég fékk ógeð á Höfðingja eftir það :)
Ég er alltaf til í húspartý!
hahaha, æðislegar myndir. Ég var búin að gleyma þessari síðu.
Mætti kannski taka út myndirnar þar sem við erum aaaðeins of góðar vinkonur *hóst*.
Ég legg til að við breytum nafni lesstofunnar í slúðurstofu og Hjónagörðum í fylleríisgarða ;)
Pulsur&Spagettí™. Var að fá einkaleyfi fyrir þessu vörumerki. Alltaf til í partý...nema það sé pabbahelgi.
Skrifa ummæli