mánudagur, 14. júlí 2008

Velkomin ég!

Afhverju er ég að fá mér þetta blogg? Ég hef ekki hugmynd. Einstaka sinnum langar mig til að blogga um eitthvað. Mér finnst samt líklegt að næst þegar það gerist verð ég búin að gleyma því áður en ég sest við tölvuna.
Þess vegna eru 99% líkur á að þessi síða hljóti sömu örlög og sú síðasta, sem eyddist sjálfkrafa afþví að hún var aldrei notuð. Úps.

Látum á þetta reyna....

Ég var send í bíó í gær og ég meina sko send! Ég fékk engu um það ráðið. Þegar ég sótti Diljá í pössun var mér snúið við á staðnum og hent öfugri út (ekki gay samt) með pening í vasanum og sagt að fara að sjá Mamma mia með litlu syss, sem er reyndar ekkert svo lítil lengur.
Ég mæli með henni. Ekta stelpu-hópferðar-mynd, ja og fyrir þá stráka sem langar að sjá sjálfan James Bond syngja Abba lög með tilþrifum. Það eitt fær mann til að gráta af hlátri!

Rassinn að gróa fastur við stólinn...farin í kaffi.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

líst vel á þetta!
langar líka ógó að sjá mamma mia. :)
knús Karen frænka

Nafnlaus sagði...

Líst rosa vel á að þú sért byrjuð að blogga :) bæti þér á bloggrúntinn....
Sammála með mydnina fannst hún ÆÐI :)
Knúsar Harpan