
Samviskusamlega er ég búin að ljúga því að fullt að fólki, að ég hafi sko ekki farið á McDonalds útí Tælandi. Ég fór sko bara á local veitingastaði og prufaði hina ýmsu rétti, þ.á.m. grillaðan krókódíl.
Hverjum hefði dottið í hug að Davíð hafi tekið sönnunargagn og póstað því á netið. (svo kallarðu þig vin! Piff!)
Jæja, ég held ég verði þá að viðurkenna það. Ég fór EINU sinni á McDonalds útí Tælandi. Æji ok ok, ég fór þrisvar. En ég hef góða afsökun fyrir öllum þremur skiptunum!
1. Það var að nálgast miðnætti, ég var ein að fá mér að borða og það var verið að loka öllum veitingastöðum nema Makk.
2. Eftir að allur hópurinn var búinn að skiptast á immodium eins og tyggjói, langaði mig að borða eitthvað sem voru litlar líkur á að ég fengi í magann af. Hvað er þá betra en vestrænn skyndibiti ;) Ég held meira að segja að þá hafi líka verið að nálgast miðnætti.
3. Um miðja nótt eftir djamm á Khao San Road. Ingunn og Pálmi fengu sér reyndar maís á einhverju götuhorni, en við Davíð vorum svööööng.
Einhvern veginn kemur það ekki á óvart að ég sé að þamba kók á myndinni :)
P.s. Þessi mynd er stolin án leyfis höfundar, nánar tiltekið af Flickrinu hans Davíðs. Flottar myndir btw! ;)
Kókistinn
Engin ummæli:
Skrifa ummæli