Þessar samræður áttu sér stað á leiðinni á leikskólann í morgun:
D: Mamma, Guð skapaði okkur.
R: Er það? Hver sagði það?
D: Enginn, ég bara veit það. Hann skapaði alla mennina, meira að segja smíðamennina!
R: ha? Smíðamenn?
D: Já, svona sem smíða hús og svona. Hann skapaði fyrst þá og svo þegar þeir voru búnir að byggja húsin þá skapaði hann hina.
R: Jahá. Kannski skapaði Guð Jörðina fyrir langa löngu, en þá voru engir menn á jörðinni. Fyrir mörgum þúsundum ára urðu sumir apar að mönnum. Einu sinni voru líka til öðruvísi menn á jörðinni, sumir rosalega litlir, sumir rosalega stórir og aðrir sem voru næstum því eins og apar.
D: Já, ég vil sko ekki hitta þá. En núna eru menn svona alls konar, sumir eru brúnir og sumir gulir og sumir laxableikir. Ég er svona brún-laxableik á höndunum.
Húsin voru til þegar hún fæddist, þess vegna að sjálfsögðu áður en allir hinir fæddust! Gaman að spjalla við litla rugludallinn minn!! :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
hún er með þetta á hreinu...
hhahahaha hún er snillingur:D
Skrifa ummæli