sunnudagur, 20. júlí 2008

Sundlaugarstripp

Vá, í dag toppaði Magga sundlaugarstrippið mitt með stæl!!!

Fyrir þá sem hafa ekki heyrt söguna, þá skellti ég mér í sund með Davíð í Borgarnesi fyrir nokkrum vikum. Við vorum bara 3 í pottinum (sem betur fer), ég, hann og einhver kona. Nuddið var að hans sögn rooosalega gott og ég varð auðvitað að prufa. Nema það að nuddið er aðeins kraftmeira en bikiní buxurnar mínar ráða við og þær runnu næstum niður að hnjám. Úps!!! Sem betur fer fyrir mig og því miður fyrir Davíð voru þau bæði að horfa eitthvað annað. Þegar Davíð leit á mig hélt ég fast í buxurnar mínar, eflaust eins og tómatur í framan að reyna að worka þetta nudd án þess að halda í haldfangið. Það gekk ekki.

Í dag vorum við Magga svo í Kópavogslauginni með trillurnar 3, þegar Magga tekur eftir því að hún hafði farið öfugt í bikinítoppinn og miðinn stóð út á hliðinni. Haldiði ekki að pían hafi ekki vippað sér bara úr og snúið honum við meðan hún hélt um búbburnar. Hún var svo snögg að þessu að enginn tók eftir þessu, greinilega vanur sundlaugastrippari þar á ferð!!!

Eftir ofurlítinn pirring og all margar tilraunir til þess að láta mig fljóta í innilauginn, komst ég að því að ég hafi þrátt fyrir allt staðið mig ágætlega. Ég meina, það er ekki hægt að ætlast til þess að ég fljóti jafn vel og manneskja með miklu stærri búbbís en ég!! Kommon, þau hljóta að virka eins og flotholt. Þess vegna krefst ég þess að fá að gera aðra tilraun og hafa á mér handakúta, eða að miða mig við einhverja í mínum brjóstaflokki.

Ég mæli með gömlu Kópavogslauginni! Hún er æði eftir breytingarnar.

Hey, ég lít ekki lengur út eins og fullur Íri!! :D Nú lít ég bara út eins og edrú Íri. Vonandi í skárri kantinum samt ;)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahahaha! Já, ég er vön. Ef þú bara vissir.

ynja sagði...

trillurnar 3...vá ég hugsaði bara um bókina sem ég las milljón sinnum þegar ég var lítil! :)

en flothold...ég hef nú alltaf verið með ofurbúbbís og ekki halda mínar mér á floti...það er kannski einhver miðja þarna....sem ég er þá komin yfir....því ég sekk bara sko, þannig að þegar við förum í flotkeppnina þá verða engin hjálpartól leyfð góða mín.:)

Nafnlaus sagði...

en ég held svo að nuddið sé aðallega notað til að nudda axlirnar....ekki bossann...kjáni! :)

Rakel sagði...

O jæja, þú getur þá ef til vill afsannað kenningu mína og ég lýsi því formlega yfir að ég sé vanhæfur fljótari!

Ég bíð spennt!

Magga, ef þú ert að tala um þegar þú afklæddir þig í gufubaðinu og fórst í sleik við pólverjann þá veit ég það nú þegar sko!

Nafnlaus sagði...

I would never! Þetta var sko enginn Pólverji skal ég segja þér.