Ég hef ákveðið að breyta um nafn. Við störf mín hér á skrifstofunni hef ég rekist á svo mörg nöfn sem ég heillast að, að ég get ekki annað en notað þau.
Núna megið þið vinsamlegast kalla mig Eggertínu Beru Alexíusardóttir.
Einnig ætla ég mér að eignast tvær dætur sem eiga að bera nöfnin Vigfúsína Eggrún og Leopoldína Gíslína.
Nú þarf ég bara að drífa í því að ættleiða tvær dætur og finna mér pabba sem heitir Alexíus. Ætti ekki að vera mikið mál. Vá, ég get ekki beðið! :)
Já, það er fjör í Kirkjugarðinum!
Kær kveðja,
Eggertína Bera Alexíusardóttir - sem situr að sjálfsögðu ber við tölvuna til að heiðurs nýja nafninu! ;)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hahahaha, magnað!
Hvernig ætli sé þá að vinna í Hagstofunni eða Mannanafnanefnd? Endalausar frábærar tillögur beint fyrir framan nefið á manni.
Skrifa ummæli