Ætla að rúlla til Keflavíkur og skoða keilis-svæðið og athuga hvort ég geti ekki fengið að kíkja á einhverja íbúð eins og var verið að úthluta mér. Ef til þess kemur get ég bara dulbúið mig sem verkamann, ekki málið.
Vá hvað þetta er mikill hausverkur, það kemst ekkert annað að í hausnum á mér núna...keilir eða ekki keilir....keilir.....eða ekki keilir.....keilir......... 110 fm eða 37 fm fyrir nákvæmlega sama verð á mánuði. PIRR
Grillpartý hjá Katrínu og Gosa í gær. Rooosalega góður matur, spjall og spilerí. Sequence er rosa skemmtilegt!! Ég heimta meira spilerí á næstunni svo ég geti unnið Rolla og þaggað endanlega niður í honum. Sko þagga niður í skotunum á mig, ætla mér nú ekki að drepa manngreyjið. Já, ég viðurkenni það, ég er álitin einstaklega lélegur meðspilari ....snökt.
Planið um helgina er útilega og út að borða með Toma og samkvæmt honum hljómar það eins og englasöngur, en það þurfti svo sem ekkert að segja mér það ;)
Augað á mér var neytt til fyrirsætustarfa um helgina. Hendi með tveim myndum sem að Kristinn tók, einni af mér og einni af auganu sem er nú búið að fá tilboð frá 3 erlendum umboðsskrifstofum eftir að hafa verið birt á Flikkrinu.
Ef ykkur leiðist í vinnunni þá er eflaust hægt að dunda sér við að telja freknurnar mínar sem hafa náð óvæntri útbreiðslu undanfarið.
Kveðja,
Rakel og augað


2 ummæli:
Ó hvað ég er sammála þér, það er ógeðslegt að þurfa að hanga inni í þessu veðri!
Mjög flottar myndir af þér.
Flottar myndir ;)
Skrifa ummæli