Afsakið orðbragðið....en djöfulsins, ógeðis vibba vibbi!
Ég skrapp aðeins í hádeginu. Rosa gott veður þannig að ég var með smá rifu á bílrúðunni. Ég er svo að taka beygju þegar ég heyri SMACK og finn svo smell á kinninni á mér. Strík með hendinni og sé þessar risa leyfar af flugu, í einum graut. Kvikindið hafði flogið á rúðuna, slesst á stýrið og endað á andlitinu á mér. Ég hélt að þetta væri kannski fuglaskítur eða eitthvað álíka, því að það voru svo rosalegar hvítar slettur á stýrinu, en við nánari athugun á klessunni, sem ég var þá búin að klína á hurðina (vildi losna við hana af puttunum hehe), þá sá ég myndalegan fluguhaus.
Það fer ekkert á milli mála að það síðasta sem flaug í gegnum hausinn á þessari flugu var rassinn á henni.
Gat helvítið ekki haft vit á því að enda á grillinu á bílnum eins og hinar 2000 sem eru þar núna?! En þetta var heldur ekkert venjuleg fluga. þetta virðist hafa verið risafluga sem flýgur á hlið!
Hrollur!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
OJbarasta ! ég hefði dáið :S
Skrifa ummæli