Það er allt klappað og klárt og ég er að fara að flytja í svona íbúð:
Hún er 95 fm, 3ja herbergja með geymslu og þvottahúsi. Öll heimilistæki fylgja með, þ.á.m. uppþvottavél, þvottavél og þurrkari. Fyrir utan er fínt leiksvæði fyrir börn og rútan stoppar rétt hjá.Ég fæ hana afhenta 16. des og þarf því að borga hálfa leigu fyrir desember, en það verður bara að hafa það. Það var annað hvort þetta eða að fara á biðlista.
Ég er búin í prófum 19. des og fer þá bara að dúlla mér við flutningana eftir það. Ég hef mína íbúð til ca 5 jan.
Planið er að halda Diljá í skólanum í Rvk, halda bílnum í bænum og taka rútuna á hverjum degi. Ég er að fara að skrifa Bs ritgerðina næstu önn og hef því gott af því að hanga í skólanum að læra.
Ég er rosa sátt við þessa ákvörðun og er farið að hlakka alveg rosalega til.
Reyndar á ég eftir að sakna silfurskottanna ansi mikið, en ég tek kannski nokkrar með mér.
Lærdómurinn er að ganga ágætlega með því að óverdósa magic, ég lærði til 4:20 í nótt og þannig verður það bara að vera þangað til þetta er búið ef þetta á að hafast.
Var í heilalínuriti í gær. Engar niðurstöður enn sem komið er. Engar fréttir = góðar fréttir.
Ásdís og Ben voru að eignast stelpu nr. 2 áðan. Hún kom í heiminn heilbrigð og öskrandi (samkvæmt sms frá Ben) og hefur fengið nafnið Gaia.
Ég óska þeim og Freyju innilega til hamingju með hana! :D Hún er eflaust jafn mikið bjútí og stóra systirin.
Farin að koma litlum brjálæðing í bólið......
14 ummæli:
ú til hamingju neð íbúðina :) ! Er alveg viss um að þú átt eftir að plumma þig vel :) ! Kannski að ég nái meira segja að skoða íbúðina áður en ég fer heim aftur vúhú :)
knús
Til hamingju! Get ekki sagt að ég muni heimsækja þig oftar þangað en kannski bara jafn oft? Hahaha.
Hlakka samt til að koma í heimsókn :)
-Magga
ég verð því miður að svekkja þig Rakel mín en þetta er bara ALLS ekki íbúðin sem þu ert að flytja í ...hún lítur ekki svona út!!
hún er akkurat spegilmyndin af þessari ;)
kv
neighbour eða soon to be allavega ;)
hahhaa ó nei, þá þarf ég að hugsa þetta algerlega uppá nýtt :D
Djí, ég er svo spennt að ég get varla lært.
Sísí þér ber skylda til að bjóða mér í "velkomin-mat"! Múhaha
ókei... ekkert verið að segja manni?!?! ber þér ekki skylda til að láta nánustu vinkonu þína vita að þú ætlir að gerast dreifbýlistútta! :-o
Dreifbýlistútta hahaha það er rétt :) Til lukku með þetta samt aftur en ég verð ofsalega upptekin frá 19. og alveg þangað til að þú ert flutt, er nefnilega með ofnæmi fyrir flutningum, bráðaofnæmi meira að segja ;) Þú verður svo bara dugleg að vera í bænum og svona, svo maður sjái þig nú e-h tímann...Ég held samt ég verði að skipta jólagjöfinni þinni í vekjaraklukku híhíhí svo þú farir actually í bæinn á hverjum degi :D
kv. Eva
Oj þér Eva, ég er alveg sármóðguð! Ég vakna kl 7 á hverjum morgni og bý mér til hafragraut!! Eða var það kl 10....? :/
Piff, ég get alveg flutt allt draslið ein! Er með vöðvabólgu fyrir hvort sem er! (snökt)
Ég man þetta góða mín! ;)
Tinnz, ég tala bara við fólk sem vakir á daginn! ;) Var líka bara að fá þetta staðfest í gær.
Kv, Dreifbýlistúttan
ó mæ..!!
til lukku með þetta mín kæra:)
kv. sjeibsí
Gleymdist að nefna að ég er að fara að borga 62.280 með öllu.
Það er 2000 kr lægri leiga en ég er að borga fyrir holuna sem ég er í núna.
Ekki slæmt! :)
geggjað spennó!
og vaknar kl. 7?
ehem.. segi ekki orð
Til hamingju með þetta, þetta verður æði!
Kv.Karen frænka
til hamingju (beiskleiki). drep þig samt ef það kemur eitthvað beyglað par þarna í staðinn! :)
Þá kemurðu bara til mín elskan ;)
Þú átt eftir að öfunda mig þegar þú kemur í heimsókn og sérð að ég hef 70 fm meira pláss til að dansa alein við Partyzone og Flex :)
Þá kemurðu bara og verður dreifbýlistútta með mér!! Enda áttu eftir að sakna mín svo ógeðslega mikið að þú getur ekki lifað án mín. Hver annar fer svo sem útí búð fyrir þig kl 2 að nóttu til og kaupir popp og kók? ;)
Knús á þig mús
þú átt eftir að fá víðáttubrjálæði þarna!
Skrifa ummæli