


Tengdasonurinn var að flytja út á land þannig að við fórum og kvöddum familíuna. Leyfðum litlu hjónunum að leika sér á Kentucky og svo kom ansi dramatísk kveðjustund.
D: Mikael, þú verður að koma í heimsókn til mín, ég á eftir að sakna þín svo af því að ég elska þig svo mikið!!!
M: Nei, ég get ekki komið í heimsókn til þín, ég er að flytja til Dalvíkur og kem aldrei aftur til Íslands!
Þau eru æði!! :D
Annars er ég bara að kafna í leiðindalærdómi. Búin að rúlla upp þremur prófum, eitt eftir og nokkur verkefni. Verð búin 19. des og fer þá beint í að flytja. Skila lyklunum af þessari 30. des. Skemmtilega jólafríið :/
Byrja eflaust næstu önn ennþá með æluna í hálsinum. En hey, þá get ég allavega dreift draslinu mínu um 95 fm í stað 37. Újeeee
Barnið hefur verið sett tímabundið í fóstur og eins og hún orðaði það fékk hún að koma í heimsókn til mín :) Mig minnir líka að ég eigi einhverstaðar kærasta......kannski var það draumur....
Verð að skella með þessu æðislega myndbandi af litlu hjónunum. Þarna voru þau nýorðin 3 ára og "bossi" var það fyndnasta í heimi.
Úff hvað ég á eftir að sakna ykkar þarna! Stingið af úr Keflavík þegar ég er að koma þangað SNÖKT
3 ummæli:
go Rakel - go Rakel, you can do it lítið eftir :)
kv. Eva
Gangi þér vel á lokasprettinum :)
hlakka til að sjá þig ;)
Oooo þau eru svoooo sæt!
Þið verðið bara að koma í heimsókn til okkar því eins og Mikael segir þá eigum við aldrei aftur eftir að koma til íslands lol!
Skrifa ummæli