MÆ GOD hvað ég get ekki beðið eftir því að komast úr þessari holu. En er það eitthvað að fara að gerast??
Ég hringdi aftur í Vesturgarð og svarið var aftur nei, ég fæ ekki húsaleigubætur. Það þýðir að ef ég fer til keflavíkur þarf ég að borga um 25 þ kr meira á mánuði í leigu plús ferðakostnað því ég fer auðvitað stundum á einkabíl. Keflavík er því algerlega off.
Ég var reyndar búin að undirrita samning og það kemur í ljós á morgun hvort þær krefja mig um einhverja leigu þar.
Ég talaði við konuna sem sér um að úthluta hér og hún náði að semja við gaurinn sem á að fá íbúðina mína um að bíða í ca 2 vikur þangað til önnur íbúð losnar hér í húsinu. Ég get því verið hérna lengur en hef ENGA löngun til þess. Sérstaklega þar sem ég er núna dottin út af öllum biðlistum um milliflutning.
Þá fór ég og talaði við Byggingarfélag Námsmanna. Júbb, það er 3ja herbergja íbúð sem stendur tóm í Bólstaðarhlíðinni. Henni hefur verið úthlutað til manneskju sem hefur frest út daginn til að svara af eða á. Konan hringdi í hana áðan og þá var hún enn ekki búin að ákveða sig. Í fyrramálið verður hún að svara og ef svarið er nei þá er íbúðin mín.
Þess vegna allir að krossa putta fyrir mig núna!!!!!!!!!!!
Þessi íbúð er reyndar mjög dýr, en þar sem ég fengi húsaleigubætur kemur hún út ca 5 þ kalli ódýrari en ef ég færi til Keflavíkur og fengi engar húsaleigubætur. Plús að ég mundi sleppa við ferðakostnað.
Ef ég fæ hana verð ég sem sagt bara að lifa ódýrt (ef það er mögulegt að lifa ódýrara en ég geri) og svo er ég að spá í að flytja mér inn eiginmann frá Indlandi sem gæti borgað helminginn í leigunni. Eða helst samt Indverja sem býr í Bretlandi og er með breskan hreim. Eða eiginlega bara þennan hér:

Ætli hann sé til í að giftast mér? Ég elska hann í alvörunni alveg rosalega mikið! Hann þarf svo sem ekkert að giftast mér, bara búa með mér og borga hálfa leigu.
Jæja krossa putta!!
Ef ég fæ ekki þessa íbúð þá ætla ég að grafa mér holu einhverstaðar og leggjast ofaní hana þangað til að það bíður mín eitthvað betra.
8 ummæli:
Ef þú nærð að fá hann til landsins þá skaltu muna að maður deilir öllu með vinum!!
Knús
Freyja
Þetta er agalega huggulegur maður. Af hverju myndiru ekki láta hann borga alla leiguna, það væri örugglega ekkert má fyrir hann.
segi það, láta hann borga alla leiguna og borga fyrir að sofa hjá þér. þá getum við sko farið í bæinn að spreða!!!
Afþví að ég er sjálfstæð kona sem þarf engan karlaula til að halda sér uppi!!
Sömu rök og fyrir því að ég mundi aldrei kalla neinn betri helminginn minn. En jafn góður helmingur gæti gengið :)
Deila segirðu Freyja, ég skal með glöðu geði deila með þér barninu mínu ;) En Sendhil færðu sko ekki! Hann er MINN! hann bara veit það ekki ennþá.
P.s. Atli töff?? Ég sem hef alltaf haldið að þú heitir Atli huggulegi :/
Ég krossa puttana fyrir þig skvíz, þú færð vonandi þessa íbúð :)
Er annars að flytja í nágrennið við þig eftir rúma viku, væri gaman að fá ykkur mæðgurnar í heimsókn þá.
Kv.Fanney Björg
KROSSA PUTTA fyrir þig sæta
knús í bala
krossa fingur að þú fáir íbúðina... vona það, vona það, vona það :)
en já hann er mega flottur gæinn sem þú ert að spá í :)
kv. Martha
Sko þar sem ég tel mig nokkuð vana í þessu silfurskottustríði þá skal ég segja þér að það er VIÐBJÓÐUR að vera í íbúðinni eftir að það er eitrað fyrir þeim og þá sérstaklega nokkrum vikum eftir. Áður en það er eitrað hafa þær allavega vit á því að vera ekki fyrir manni en c.a 3 vikum eftir að það var eitrað hjá okkur voru þær skriðandi löturhægt um alla helv..! íbúð allan sólahringinn!! ARG!
Kv. Hildigunnur
Skrifa ummæli