mánudagur, 29. desember 2008

The Berthelsens

Ég, pabbi og litla syss sátum og horfðum á TV í kvöld þegar það kom Heroes auglýsing.

Ég: Hey, pabbi, þarna er maðurinn minn! Hann reyndar veit það ekki ennþá. Sonja, heldurðu að hann sé ekki til í að giftast mér?
Sonja (með nefið ofaní ferðhandbók): Ha, hver?
Ég: Sendhil Ramamurthy!
Pabbi: Rakel þú ferð nú ekki að giftast einhverjum sendli!

Ég elska húmorinn hans pabba. :)

Litla skottið var að semja nýtt jólalag. Það heitir " Bull og vitleysa í jötunni lá" Þessi lína er sungin svona 50 sinnum og þá er lagið búið.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hann er snillingur, auðvitað ferðu ekki að giftast einhverjum aumum sendli! Hahaha.
-Magga

Nafnlaus sagði...

Gullkorn:

Tinna: Hvað gerist árið 2009 stelpur?
Sunna: Ég verð seven
Diljá: six
Tinna: en ég, hvað verð ég gömul?
Sunna: 28!
og svo verðurðu 29 og svo 30! Vá ertu ekki að djóka, verðurðu þá orðin gömul kelling(gerir sig gamla í röddinni)
Tinna: hahaha
Diljá: góður brandari sunna (heldur áfram að lita)

Rakel sagði...

Haha getur verið að drykkja mæðra þeirra hafi svona óbein steikt áhrif á þær?
Þær eru svo mikil æði :)

Unknown sagði...

Hvað er málið með bloggleysi??

Rakel sagði...

Netleysi er ástæðan fyrir bloggleysi. Nú er búið að bæta úr netleysi þannig að nú skal einnig bæta úr bloggleysi :)

Berglind...Freyja býst ég við?