þriðjudagur, 13. janúar 2009

Afsakið Hlé!

Í augnablikinu sit ég ein heima og er hlægjandi yfir lúðaskapnum í sjálfri mér. Mér tókst að fá lakkrísbita uppí nefgöngin með því að sjúga uppí nefið meðan ég var að borða lakkrís. Alls ekki þæginlegt!

Ég er loksins komin með netið í nýja pleisið þannig að núna skal bætt úr bloggleysi, uppfæra heimasíðuna hennar Diljár, redda skólamálum, skrá mig í dans og setja inn auglýsingu á einkamál.is.

Ja, eða kannski sleppa þessu síðasta. 

Okkur mæðgum líður rosalega vel í nýja pleisinu. Litla skottið ekkert smá ánægð með herbergið sitt og ennþá ánægðari með bleika vekjaraklukku sem ég keypti á 95 kall í Ikea. Hún er látin hringja á hverjum morgni og ég dröslast fram úr og slekk á henni þar sem prinsessan á bauninni rumskar ekki við hana. 
Ég ætla að skella inn myndum af pleisinu inná síðuna hennar Diljár fyrir Baunaveldisbúa og Sveitalúða sem koma ekki í heimsókn á næstunni. 

Ef að utanviðsigakstur væri íþróttagrein væri ég án efa fimmfaldur Íslandsmeistari!! 
Undirmeðvitundin mín býr ennþá á Eggertsgötunni og á ekki krakka. 
Einn daginn á ég eftir að valda árekstri þegar ég negli niður og beygji til hægri þegar ég keyri framhjá 365 miðla húsinu og fatta að ég sé flutt, vonum samt ekki. Einnig er ég alltaf að keyra fram hjá skólanum hennar Diljár og bölva síðan sjálfri mér þegar ég fatta
 það. Það ætti að banna fólki eins og mér að hlusta á tónlist í bílnum, hvað þá að syngja með. 

Tinna greyjið er ekki að fyrirgefa mér eftir að hafa verið skilin eftir með eintómum pörum og smákrökkum. Og viti menn, í íbúðina mína flutti einmitt par sem á von á barni. 
Í gær labbaði hún fram og sá karlmannsskó fyrir utan íbúðina mína og gapti, hélt hún væri með mega slúður. Fattaði svo að ég á ekki heima þarna lengur. Ágætt að vita að það eru fleiri með slow undirmeðvitund. 


Gelgja prinsessunnar fer versnandi....
Við matarborðið:
Ég: Oooo þú ert svo falleg!
Gelgjan: Er ég falleg?
Ég: Já, mér finnst þú svooo falleg!
Gelgjan: Oh, mér er alveg sama!!!!

Morguninn eftir á leiðinni út:
Gelgjan: Oh, mamma þessir vettlingar eru svo lúðalegir!!!

Er ég ekki of ung til að vera orðin lummó mamma??

Jólin eru ennþá heima hjá mér. Við mæðgur ákváðum að setja upp jólatré og jólaskraut 4. jan þar sem við fengum ekki tækifæri til þess í holunni. Ég ákvað að leyfa trénu að standa út vikuna. Mér finnst svo kósý að hafa það, enda haga ég mér samkvæmt því. Er með kertljós, jóaltréljós og sit og glápi á góðar kvikmyndir. 
Í gær horfði ég á eina sem heitir Bella. Fékk mig til að grenja, damn it! Ég er ekki vön að grenja yfir myndum, nema þegar að barn deyr eða týnist, það snertir einhverjar taugar í mér enda er það versta martröð allra foreldra. En þetta er góð mynd, skildi mikið eftir sig.
Núna er ég með 3 stykki, No country for old man, Little children og August Rush. Einhver dramafílingur í gangi þessa dagana.

Svo er ég bara að byrja á fullu í B.s. Er komin með leiðbeinanda og er aðeins farin að leggja línurnar. Er að fara að skrifa um Couch Surfing. Mér finnst það rosa spennó. 

Jólakveðja úr jólakotinu,
Rakel og lakkrísbitinn

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er akkúrat verið að plana djamm um helgina og eftirpartý og læti til að sýna pörum með smábörn hvar davíð keypti ölið. eða veist...

Nafnlaus sagði...

af hverju er ekki lengur hægt að smella á myndirnar til að gera þær stærri? ég er miður mín.

Nafnlaus sagði...

hvað er númerið hjá Heiðu???
kv. A

Nafnlaus sagði...

Hahaha þið mæðgur eruð snillingar. Nýja pleisið er ógeðslega flott!
-Magga

Nafnlaus sagði...

Líst rosa vel á B.S verkefnið þitt:) og til hamingju með nýju íbúðina!:)

Hera Brá

Nafnlaus sagði...

get ég fengið nánari útskýringu á b.s. verkefninu.. veit ekkert hvað þetta þýðir?!

kv. sjöbba

Rakel sagði...

Tinna: afþví að ég vil ekki að það sé hægt.

Atli: Finndu þína eigin Heiðu. Ég á þessa!

Takk Magga og Hera :)

Sjöbba: Couch Surfing er þegar fólk leyfir ferðamönnum að gista á sófanum hjá sér frítt og fær svo að gera það sama þegar það fer til útlanda, hvort sem það sé hjá sama fólki eða annars staðar.
Sjá hér:
www.couchsurfing.com

Nafnlaus sagði...

kvitt kvitt

Mér líst rosa vel á nýja plaisið þitt, voða kósý að koma til þín um daginn :)

jæja kveðja frá DK vúhú

Harpan

Nafnlaus sagði...

hæhæ....bara kvitta fyrir komuna! :)
Er með tvær í viðbót, must see myndir, Taken og slumdog millionaire, fá báðar toppskor á imdb, getur bætt þeim á listann.
knús frá Horsens.