þriðjudagur, 27. janúar 2009

Er ég á leið til helvítis?




Ég er svo æst eftir umræðu dagsins að ég verð barasta að tjá mig. Neibb, ég er ekki að tala um pólitík ótrúlegt en satt, þó að ég geti nú alveg potað hérna inn: Go Steingrímur!! :)

Ég var að koma úr tíma sem heitir Afríka í hnattvæddum heimi nútímans. Við vorum að lesa greinar um trúboð og hvernig trúboðar skiptu fólki Afríku í ættbálka til að auðvelda hluti fyrir sig sjálf. Út frá því myndaðist umræða um trúboð almennt, hvort það væri hjálp eða átroðningur og so on. Það var sérstaklega skemmtilegt að ein manneskja í hópnum (við erum frekar fá í þessum áfanga) er í söfnuði hér á landi og hefur farið út sem trúboði. 
Ég er þessi ósköp venjulegi Íslendingur, er skráð í þjóðkirkjuna, lét skíra dóttur mína, trúi á eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað er en fer sama sem aldrei í kirkju. Hins vegar er ég alveg rosalega á móti trúboði. Trúboð af öllu tagi finnst mér átroðningur. Mér finnst að hver og ein manneskja hafi rétt á að trúa því sem hún vill og engin trú er betri en önnur. Það er nú bara staðreynd að trú er bara hugmynd ekki vísindi. Það er nákvæmlega ekkert sem sannar að það sé til einhver æðri máttur og því fáránlegt að reyna að sannfæra aðra manneskju um að ein trú sé betri en önnur. 
Kristin trú boðar kærleika gagnvart náunganum, en í sögulegu samhengi hefur kristin trú eflaust gert meira slæmt heldur en gott. Svei mér þá ef heimurinn væri ekki bara betri ef að það væri ekki til neitt sem kallast trú. 
Sumir nefndu það góða sem hefur fylgt trúboði, t.d. lyf og menntun. En það er líka staðreynd að í mörgum tilfellum hefur það bara verið í boði fyrir þá sem samþykktu kristna trú. Margt af því fólki sem samþykkti kristna trú hefur eflaust gert það einungis til þess að fá aðgang að lyfjum og menntun. Persónulega mundi ég samþykkja að aðhyllast hvaða trú sem er ef það bjargar lífi barnsins míns. Auðvitað á þetta tvennt að vera algerlega aðskilið. Ef að fólk vill hjálpa, gera það þá án þess að vera að boða trú í leiðinni. 

Eftir tíma vorum við nokkur aðeins að tala meira saman um þetta og kom í ljós að sú manneskja sem hefur farið erlendis sem trúboði trúir því einnig að samkynhneigð sé synd. Mér finnst alveg stórmerkilegt að það sé hægt að hugsa svona nú til dags. Ég vildi nú ekki vera leiðinleg en ég varð að spyrja frekar útí þetta. Ég tók það fram við manneskjuna að ég beri virðingu fyrir hennar skoðunum, en gat ekki stillt mig um að rökræða þetta. Ef samkynhneigð er synd, er það þá val einstaklinga að vera samkynhneigt? Ef við lítum á fordómana í samfélaginu og þá erfiðleika sem geta fylgt því að vera samkynhneigður, getur verið að fólk velji sér það? Velur sér einhver að vera frávik frá norminu og þurfa að berjast fyrir rétt sínum? Mér finnst líka alveg stórmerkilegt að hægt sé að trúa á Jesú Krist og þann kærleika fyrir náunganum sem hann boðaði og á sama tíma trúa því að hann hafi boðað að samkynhneigð sé synd. Boðaði hann sem sagt kærleika til allra nema samkynhneigðra? Já og fólk sem stundar kynlíf utan hjónabands, það kom líka fram. 
En þetta eru bara skoðanir og ég verð að bera virðingu fyrir þeim. En það er alveg á hreinu að ef manneskjan hefur rétt fyrir sér þá fer ég beinustu leið til helvítis. Eða ætli dóttir mín sé eingetin? 
Jæja, ég er hætt þessu tuði mínu. Ef það er einhver sem er að velta fyrir sér námi, þá mæli ég sterklega með mannfræði :)

Ég skellti með nokkrum nýlegum djammmyndum. Steinunn frænka var á landinu síðustu helgi og dró ég hana og hennar föruneyti á pöbbarölt. Takið eftir súper stutta hárinu mínu :) Það er styttra þeim megin sem snýr að Steinunni. 

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá hvað ég er sammála þér, þoli ekki þegar trúboðar (vottar jehóva) banka upp á og halda að maður hefur brennandi áhuga á að bjóða þeim inn og spjalla við þá um trúnna. Ef þessi manneskja hefur rétt fyrir sér þá færi ég með þér til helvítis ;o)
kv. Vilborg

Nafnlaus sagði...

Hva...get bara skráð mig sem nafnlaus...

Amen.

Nafnlaus sagði...

Ég vorkenni svo þessu fólki, þeim finnst þeim ekki hafa neitt val. Þetta er bara heilaþvottur og það er búið að hræða það svo mikið að það heldur að þetta sé það eina rétta, ég hugsa oft um hvað það fer á mis við mikið í lífinu útaf trúnni. Var sko að lesa bókina slæðusviptingar sem er um íranskar konur, gæti skrifað 10 bls um trú og hefðir og hvaða áhrif það hefur það getur haft á líf fólks, en ætli ekki að misnota kommentakerfið þitt :)

kók

Nafnlaus sagði...

Ú hljómar vel. Þessi bók fer á must read listann minn.

Rach

Nafnlaus sagði...

úff, don't get me started on religion segi ég bara...

:)