þriðjudagur, 23. desember 2008

Góðar fréttir!!!

Hulda ætlar að fresta jólunum!!! :)
Þetta eru einstaklega góðar fréttir þar sem að ég sit enn sveitt við lærdóminn og núna eru 19 mínútur liðnar af Þorláksmessu. Ég á eftir að redda nánast öllu fyrir Jólin, þ.á.m. jólafötum og skóm fyrir barnið.
Ég var því einstaklega glöð þegar ég sá að Hulda ætlar að fresta jólunum. Fyrir þá sem ekki vita á Hulda sko afmæli á sama dag og Jesúbarnið og því hef ég fulla trú á að hún geti stjórnað þessu.
Hvað segirðu Hulda, bara að fresta þessu um svona 3-4 daga, er það ekki?

Fyrir þá sem bíða óþreygjufullir eftir Jólasveininum get ég reddað númerinu hjá þessum!


Engin ummæli: