sunnudagur, 7. desember 2008

Umboðsmaður óskast!


Má ég kynna hina nýju og framúrstefnulegu hljómsveit KISURNAR!
Ísabella - söngur
Sunna - Gítar og bassi (Já, barbígrítarar eru sko 2 fyrir 1!)
Diljá - hljómborð og dans
Kristinn - trommur (held hann viti það samt ekki ennþá...)
Þessi flotta hljómsveit leitar nú að umboðsmanni.
Tónlistin er samspil af allskonar hljóðum sem sjá til þess að maður missir tímabundið heyrn.
Fyrir áhugasama er hér smá sýnishorn.....


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahaha, snillingar. Mundu samt næst að taka ekki video á hlið, haha! ;)
-Magga

Nafnlaus sagði...

Þær eru æðislegar. Hef mikla trú á að þær eiga eftir að sjá fyrir mojito drykkju mæðra sinna með spilamennsku sinni :)

kók

Nafnlaus sagði...

Ekkert smá flottar :) hahah

Rakel sagði...

Já, enda kominn tími til. Eins og Tinna benti á þá eru þær búnar að vera í fríu húsnæði og fæði í 5-7 ár.

Æji, ég klikka alltaf á þessu hliðarveseni. Tölvan mín nefnilega réttir þau við, en netið vill ekki taka við þeim þannig :/