mánudagur, 8. desember 2008

Fróðleiksmoli dagsins

Öll þessi ungabörn sem fluttu hingað með öllum nýju grönnunum eru að virka sem fínasta getnaðarvörn fyrir mig. Mér finnst ég ekki heyra annað á göngunum en grátur, frekjuköst og "ó-ó".
Í hvert einasta skipti hugsa ég "aaahh, hvað ég er fegin að þetta er búið". En málið er að í framtíðinni langar mig alveg að eignast fleiri börn. Mig langar bara ekki í smábörn.
Hvernig fer ég að því að eignast barn sem er svona 3 ára? Eða kannski 4 ára....
Í gamla daga (þ.e. þegar við vorum apar) þá voru afkvæmin okkar ekki svona lítil og ósjálfbjarga við fæðingu. Og þau tóku svo sannalega ekki frekjuköst (enda ekki nógu gáfuð til þess).

Þegar að við fórum að ganga upprétt þá breyttist mjaðmagrindin samfara því, til þess að við gætum haldið jafnvægi á tveimur fótum. Við það minnkaði mjaðmagrindin og þar með fæðingarop kvenna. Náttúruval gerði það svo að verkum að börnin fæddust með tímanum minni þ.e. fyrr og því mun minna þroskuð.
Tek það fram að þetta gerðist auðvitað á mörg þúsundum ára tímabili. (Þýðir ekkert að labba á 4 fótum og búast við þroskuðu afkvæmi ;) )
Ætli það sé samt ekki skárra að skipta um bleyjur og gefa pela í 2 ár í stað þess að ganga á 4 fótum....

Ég verð nú líka að viðurkenna að þessi aldur er megasætur:

Þó svo að það fer miklu minni vinna í þennan aldur:

Þetta var fróðleiksmoli dagsins í boði mín og Magic af því einstaka tilefni að ég nenni ekki að læra.
Over and out

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahaha þú ert svo mikið krútt elskan mín. Gaman að þessum fróðleiksmola í boði prófanna ;)

-Magga

Nafnlaus sagði...

Heyrðu ég ætla skooooo að fá jólakort í ár frá þér!!!!!! :)
Karen Á

Nafnlaus sagði...

persónulega finnst mér nýfædd yndisleg, elska lyktina af þeim, hvernig þau hreyfa sig, hvernig þau sofa....ok þetta er orðið hættulegt, einhver segja eitthvað slæmt um lítil nýfædd börn!
kók

Nafnlaus sagði...

hihi :)
ég elska nýfædd börn, get ekki beðið eftir að eignast annað einhverntímann. Annars vildi ég bara kvitta ;) - ég hlít að fá jólakort, er búin að kvitta á næstum allar færslur :) !!

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ

Var að kíkja í fyrsta sinn á bloggið enda vissi ég bara ekki af tilvist þess fyrr en ég fékk skilaboðin:) Nú lofa ég að ég skal vera vikulegur áskrifandi að blogginu. Bæti því í Favorites!

Kveðja Harpa Rut

Nafnlaus sagði...

haha sjá þetta kjötbollubarn ótrúlegt að hún sé orðin grönn eins og mamma sín núna ;) Barnið lærði náttúrulega ekki að ganga fyrr en við 3 ára aldur vegna ofneyslu rjóma bwhahahaha ojjjj hvað ég er leiðinleg. Hún var og er yndisleg svo ég noti nú uppáhaldsorðið okkar Rakel ;) Fróðleg lesning engu að síður. Ég er samt ótrúlega sammála kók (sem ég veit ekki hver er) og Hörpu ungabörn eru æðisleg. Vona að Dillan hafi það gott og sé búin að endurheimta móður sína tímabundið. Já og hvenær ætlarðu að koma og sækja kassana? Þeir bíða við hurðina eftir þér :)
Eva

Rakel sagði...

Haha Eva þó, kjötbollu barnið mitt (eða bollustykkið mitt eins og ég kallaði hana híhí) byrjaði að labba 1-2 dögum fyrir 1 árs afmælið sitt!!! En hins vegar byrjaði hún ekki að skríða fyrr en rúmlega 9 mánaða eflaust vegna fitu haha. Var byrjuð að ganga með áður en hún gat skriðið híhí

Já, hún má núna eiga heima hjá mömmu sinni en ekki bara "koma í heimsókn" eins og hún orðaði það sjálf hehe

KÓK er Kristrún Ósk Krulla