
Eitthvað var verið að kvarta yfir bloggleysi. Ástæðan fyrir þessu bloggleysi mínu er einfaldlega brjáluð fýla og leti eftir spítalaævintýrið mitt um daginn. Án gríns, ég er bara búin að vera hundpirruð á að geta ekki klárað eina önn í skólanum án þess að eitthvað komi uppá. En hvaða rétt hef ég svo sem á að vera í einhverri sjálfsvorkunn? Það er ekkert að mér og mínum. En ég tók mér samt tvær vikur í pirring sem ég held ég hafi rétt á.
Danmerkurferðin var æði, en ég ætla að segja betur frá henni eftir að ég hunskast til að setja myndirnar inná tölvuna.
Í gær var ég tengd við hjartatæki í sólahring. Þetta var nú voða nett og falið undir fötunum. Ég þurfti að lauslega skrá niður hvað ég var að gera til að útskýra t.d. aukinn hjartslátt. Einnig ef ég fann fyrir einhverjum óþægindum.
13.47 - Hélt fyrirlestur sem ég var mjög stressuð fyrir.
16:18 - Var með hægðatregðu á háu stigi
21:50 - Stundaði heitt og sveitt kynlíf - tvisvar
Ég hélt reyndar fyrirlesturinn en ákvað að fá hvorki hægðatregðu né stunda kynlíf þennan sólahring svona til að líta vel út á blaðinu. (Hver stundar svo sem kynlíf fyrir giftingu?? Jukk)
Anyways, niðurstöður eftir viku.
Ég held að bara svona 5 % hafi tekið eftir þessu tæki á fyrirlestrinum. Það eru nefnilega ca 5% af hópnum karlmenn og bra-inn minn var fullur af snúrum.
Á mánudaginn fer ég svo í heillínurit. Vúbídúbbí fjör hjá mér.
Ég er alltaf að líta í kringum mig og leita af hot læknum, en án djóks, ég er ekki búin að sjá einn einasta!!!! Ég sem hélt að hot læknar væru það sem að gerðu spítalaheimsóknir skárri.
Held ég hafi horft of mikið á McSteamy og McDreamy ásamt Clooney í den.
Ég er tímabundið flutt inná lesstofu til 19. desember. Þar getið þið fundið mig annað hvort lærandi á fullu eða sofandi og slefandi ofaná skólabókunum eins og einn gaurinn hérna í dag.
6 verkefni, ein 10 bls ritgerð, ein lokaskýrsla og 4 lokapróf á döfinni.
Kannski ekki skrítið að maður sé kominn með hjartsláttartruflanir.......
Kveðja,
McStress
6 ummæli:
bíddu bíddu bíddu.. ertu alltaf að leita þér að sætum læknum!?!?!
Nei nei, ég er alltaf að leita mér að einhverju sem gerir þessar spítalaheimsóknir mínar aðeins meira spennandi. Ekki er það spítalalyktin eða helvítis plástrarnir sem nást ekki af.
Sýna smá skilning drengur ;)
P.s. ég veit alveg að þú værir sjálfur á fullu að leita að Dr. Green! Múhaha
heyrðu væna mín!
Allir sem horfðu á ER vita að Dr. Green var var hjartað í þáttunum enda hættu flestir að horfa eftir að hann dó.
Dó Dr. Green???
Ég hætti að horfa eftir að Clooney hætti.
Þú ert með lélegan smekk á karlmönnum!
Reits
kvitt kvitt sæta mín :)
Er ekkert smá glöð að fá blogg frá þér :) ! Hlakka líka meka til að sjá myndirnar frá dk ;)
knús á þig- ég stefni svo á að koma í heimsókn á lesstofuna fljótlega eftir 10.des ;)
gangi þér vel með ÖLL verkefin og allt það
Þannig að þegar þú finnur einhverja hot lækna geturðu látið þá fá númerið mitt. Sjitt hvað ég er sátt við að þú eigir kærasta. Hahaha.
-Magga
Skrifa ummæli