Eða hvað er málið??
Í augnablikinu er ég í afslöppun hjá Karen og Baldri í Horsens, sem er auðvitað hrikalega næs. Æðislegt að sjá lillana þeirra.
Anyway, í lestinni á leiðinni hingað sat ég í sæti við glugga alla 3 tímana. Þegar það eru 10 mín eftir stend ég upp og fer að pissa og þurfti að troða mér framhjá stelpunni sem sat við hliðiná mér. Þegar ég kem til baka settist ég bara á móti henni til að þurfa ekki að troða mér aftur.
Hvað gerist????
Jú jú, eitthvað varð nú að gerast, þetta er nú einu sinni ég.
Ég var búin að sitja þarna í eina mínútu þegar það hrynur taska á hausinn á mér. Er þetta normalt eða????
Eigandi töskunnar (sem ég veit ekkert hver var) tók ekkert eftir þessu þannig að ég tróð henni aftur upp hlægjandi ein eins og bjáni.
Hvar legg ég fram kvörtun? ég er orðin pínu þreytt á þessu!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
ég þori bráðum ekki lengur að vera nálægt þér. Hræddur um að það detti eitthvað á mig sem er búið að detta á þig fyrst...
spurning um að fara ganga með hjálm og hlífðargleraugu.
Bið að heilsa Hörpu og Þór og hafðu það gott í DK.
kók
hehe þú ert svo yndislega seinheppin :) hafðu það gott í danaveldi.
vinur min er svona disaster magnet eins og þú. gaman að filgjast með honum, eins og að horfa á mynd. alltaf eihvað óvart að gerast og hann tekur þetta svo alvarlega.
Hahaha, nei ég held þetta sé pottþétt ekki normalt. Þú ert auðvitað bara snillingur í svona hlutum.
Knúsaðu Dk og H&M frá mér!
-Magga
já hjálmur er góð lausn..
sjöbba
Fínt að geta skemmt ykkur ;)
Já ég held að hjálmur og hlífðargleraugu séu málið. Þó það svo sem bjargi mér ekki frá tómatsósuslettum.
Ég hugsa að svona 2 metra radíus í kringum mig sé hættusvæði og því ráðlegg ég fólki að halda sig utan þess.
ég er áhættufíkill.
Skrifa ummæli