miðvikudagur, 25. mars 2009

Gullkorn

Litla gelgjan kemur með gullkorn á hverjum degi og ég gleymi þeim jafn óðum. Ætla að skrifa niður nokkur sem hafa komið síðustu daga svo ég gleymi þeim ekki...

Ég: YES, það er laust stæði!
Gelgjan: Yes? Afhverju segirðu yes? Ertu ekki Íslendingur?

Gelgjan: Gengur betur næst, dísess kræst!

Gelgjan stendur fyrir framan spegilinn á baðinu og er að glenna sig þegar hún fær skyndilega sjokk:
Mamma, afhverju er ég með göt á brjóstunum mínum????
Ég útskýri það fyrir henni...
G: En ég er bara barn, afhverju fæ ég ekki bara göt á brjóstin þegar ég er orðin fullorðin??

Á klóinu kl. næstum 4 um nótt:
Mamma, hvernig getum við eiginlega farið á klósettið? Er hola í húsinu og hola í jörðinni eða hvað?
Þá tók við útskýring um hvernig pípulagnir virka, svona milli þess sem ég slefaði af þreytu. 

Hún pælir of mikið, talar of mikið, hreyfir sig of mikið og kann svör við öllu. Ég held hún verði dansari, leikkona, heimsspekingur og stjórnmálakona þegar hún verður stór. Litli snilli :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

litli snillingur - mér finnst yes dæmið best hehehe :) ertu ekki íslendingur hahaha hún er svo mikil steik eins og mamma sín ;) nýtt blogg takk
kv. Eva