mánudagur, 2. mars 2009

Tiny Dancer veikin rann af mér á endanum og við tók Pink Floyd. Nú eru þessi tvö mest í spilun hjá mér enda eru þau endalaust góð. Ég sá "The Wall" fyrir 10 árum, langar að sjá hana aftur núna. 
Furðulegt samt hvað ég er alltaf með eitthvað lag á heilanum. Ég var reyndar ekki sátt um daginn þegar Hr. Menningarlegur setti "það er Daloon dagur í dag" á msn statusinn sinn og ég var raulandi það lag í 3 daga. Fyrir þá sem kveikja ekki á perunni þá var þetta auglýsing um frosið grænmeti. 

Talandi um Herra Menningarlegan. Hann dró mig á japanska kvikmynd í Hafnarfjarðarbíó, sem ég hélt að væri löngu hætt allri starfsemi. Ég ákvað að slá til, gera tilraun til að vera menningarleg líka. Við hlömmum okkur í hundrað ára gömul sætin og gerum okkar besta til að passa í þau. Stuttu síðar kemur par og settist beint fyrir framan okkur. Ég byrja að flissa inní mér. Þetta minnti mig bara á afró atriðið þar sem gaurinn sest alltaf beint fyrir framan fólk í bíó, því ekki var skortur á sætum þarna. Jæja, svo byrjar fyrirlestur um japanska leikstjórann og það koma reglulega svona brjálæðisleg læti í mígrafóninum. Í hvert einasta skipti greip liðið fyrir framan okkur um eyrun og ég var farin að eiga í erfiðleikum með að halda hlátrinum inni. Jæja, myndin byrjar og ég reyni að halda athyglinni, rosa menningarleg. Þegar svona hálftími er liðinn tek ég eftir að Herra Menningarlegur er sofnaður við hliðiná mér. Þá hnippi ég í hann og við löbbum út. En hey, það mátti þó reyna :)

2 drullugóð og drullugömul með Pink Floyd. Enjoy!


4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahaha já svaaaaka menningarleg! Líst mun betur á Pink Floyd heldur en hitt.

P.s. takk Hr. Menningarlegur fyrir að láta mig líka fá þetta bölvaða Það er Daloon dagur í dag á heilann!

-Magga

Rakel sagði...

Múhahaha MÚHAHAHAHAHHAA

Nafnlaus sagði...

hold me closer to your heart never let me go.......

Rakel sagði...

because I´ve been up all night and I´m tired of being alone....