föstudagur, 13. mars 2009

Athugið!! Líf til leigu!!


Lifirðu tilbreytingasnauðu lífi? Er vinnan of auðveld fyrir þig? Eru börnin þín svo þæg og góð að þú varla þekkir þau? Eru vinir þínir súkkulaðibrúnir viðskiptafræðingar og lögfræðingar sem tala bara plebbamál? Vantar þig spennu í líf þitt og nýja áskorun til að takast á við? Þá hefurðu rambað á réttan stað!!!

Fyrir aðeins 2 miða til Maldíveyja ásamt gjaldeyri býð ég þér líf mitt til leigu fram í júní.

Í því er innifalið:

Aðstaða: Ágætis 3 herbergja íbúð með himinhárri leigu og táfýlu í andyrinu. Þó er mögulegt að táfýlan hverfi með skónum mínum. Engar silfurskottur, en sést hefur til einnar lítillar pöddu í stofunni.

Farartæki: Ágætis bíll sem er mjög svo skítugur að innan sem utan. Flautan virkar ekki, hraðamælirinn virkar ekki, vélarljósið er fast á og bensínmælirinn er laus þannig að í hvert skipti sem beygt er kemur bensínljós og það heyrist mjög svo fagurt bíííííp. Bílinn kemur manni þó á milli staða, en ber að hafa í huga að fylgja umferðinni í hraða til að forðast hraðasekt. Nýlega hefur verið bætt á rúðupissið og olíuna.

Afkvæmi: Eitt afkvæmi er til staðar og er það 5 ára gömul stúlka. Hún er mjög svo spennandi því hún virkar svolítið eins og að spila rússneska rúllettu, þú veist aldrei hvaða viðbrögð þú færð. Eina mínútuna færir hún þér smurða skonsu og eplasafa með bros á vör en ekki líður á löngu þangað til hún kastar til húsgögnum og lemur þig með tiltækum hlut eða hnefa. Hún er kassavön en skilur hugtakið mamma sem þjónustustúlka og því heyrast reglulega skipanir á við: Gefðu mér vatn, breiddu yfir mig og skeindu mér!!!! Stúlkan er forkunnarfögur og skemmtileg. Hún á það líka til að gera heimskulega hluti vegna mikillar hvatvísi og hægt er að hlægja að því ef ei illa fer. Ef illa fer vinsamlegast hringið í 112!

Maki: Kærastinn fylgir ekki þar sem hann er bæði nýr í lífi mínu og hann þarf að halda mér félagsskap á Maldíveyjum. Hins vegar fylgir með barnsfaðir sem er mjög svo........öööö.....spes. Mikilvægt er að kynna sér hvernig á að nota slökkvitæki, fela bílinn þar sem hann ekki sér, fjarlægja öll skæri af heimilinu og ef til vill kynna sér allt um hvernig nálgunarbann fer fram. Hann er því mjög svo áhugavert og spennandi viðfangsefni.

Tekjur: Aðeins 40% námslán ásamt húsaleigubótum og meðlagi. Það dugar fyrir rándýru leigunni á íbúðinni. Þá á eftir að borga skólagjöld fyrir barnið, síma, internet, SOS styrk og bensín og mat út mánuðinn ásamt öðrum tilfallandi gjöldum.
Einnig berast reglulega símtöl frá Intrum Justica vegna leigu á íbúð sem ég hef hvorki séð né snert lykla af. Þetta er því mjög svo spennandi verkefni að leysa. Til dæmis er hægt vinna við símaþjónustu hjá Rauða Torginu á kvöldin, þó það hafi perónulega ekki vakið áhuga minn.

Félagsskapur: Fjöldinn allur af skemmtilegum, fallegum, yndislegum og partýglöðum vinum og yndisleg fjölskylda. Þar af er enginn viðskiptafræðingur eða lögfræðingur og aðeins örfáir ljósabrúnir eða brúnkukremsklíndir. Enginn af þeim talar plebbamál, þar sem ég sjálf skil það ekki. Þú getur þó ekki tekið þátt í félagslífinu þar sem þú hefur ekki efni á barnapíu. Þess vegna er mikilvægt að finna leið til að borga internetáskriftina til að stytta þér stundir.

Atvinna: Engin atvinna eins og stendur heldur fullt nám hjá HÍ. Fyrir lok maí þarftu að hafa lokið tveimur erfiðum áföngum í mannfræði ásamt B.s. ritgerð í Ferðmálafræði og þarftu að fá 9 fyrir þetta allt saman. Ég kem svo aftur í júní til að útskrifast.

Ef þetta er eitthvað sem hentar þér skaltu vinsamlegast skilja eftir umsókn í póstkassanum mínum að Dúfnahólum 10.

Þar sem ég er með mjög svo súran húmor og fólk er mjög svo gjarnt á að misskilja mig ætti ég kannski að taka það fram að ég er að skrifa þetta mér til dægrarstyttingar (því ég á að vera að læra) og er mjög svo mikið að gera grín að mínu eigin kvarti.

Eigið mjög svo góða helgi öll sömul!

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hafði virkilega gaman að að lesa þessa auglýsingu.... þó ég vildi auvðita að það væri ekki svona mikið að bögga þig.... :) þú ert góður penni ;)
Gangi þér vel með þetta allt saman og góða skemmtun ef einhver vill bítta ;)
knús á ykkur Diljá ;)

Nafnlaus sagði...

hahaha póstkassinn á eftir að fyllast af umsóknum ;)

Heiða

Nafnlaus sagði...

Þetta hljómar very interesting en ég er sjálf of bissí í mínu eigin lífi að ég held ég geti ekki tekið þetta að mér... ég skal samt alveg halda þér félagsskap í útlöndum ;)

Hera Brá

Nafnlaus sagði...

mér datt strax ein manneskja í hug. nefni engin nöfn en það er kinda augljóst hahahahha

Nafnlaus sagði...

Ertu að tala um Frk. Eyrnatappa? Ég mundi ekki samþykkja hennar umsókn, hún mundi breyta barninu mínu í fýlupúka og fæla alla vini mína í burtu.

Nafnlaus sagði...

hahaha, já fýlan :)
Hún hefur ekki látið sjá sig hérna í nokkurn tíma, er farin að sakna grimma augnaráðinu!!

Þessi mynd er æði, hún er eins og klippt út úr biomynd!!!

kók

Nafnlaus sagði...

sorrý með beygingavillurnar, það er komin háttatími.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Þetta var frábær lesning, þú ert heilmikill penni! Takk fyrir að stytta mér stundir:)
Kv. Harpa R