miðvikudagur, 8. apríl 2009

Sófadýr

Ég er með svo óteljandi mörg blogg í hausnum en gef mér aldrei tíma í að henda þeim hérna inn. Samt hef ég alltaf tíma fyrir Facebook..... ehemm

Eins og þið eflaust vitið er ég að skrifa B.s. ritgerðina mína um Couch Surfing. (Linkur hérna til hægri). Couch Surfing er alþjóðlegt net fólks sem býður ferðamönnum fría gistingu á sófanum hjá sér. Í staðinn getur maður sjálfur nýtt sér það og fengið að gista frítt á sófanum hjá einhverjum þegar maður ferðast sjálfur. Þó ferðamenn borgi ekki fyrir gistinguna eiga þeir það oft til að elda fyrir gestgjafann, gefa gjöf o.fl, en fyrst og fremst er þetta bara skemmtileg reynsla og félagsskapur. 

Hvað öryggi varðar þá skilja gestgjafi og gestur eftir umsögn á síðu hvors annars eftir að hafa hittst. Þannig er hægt að sjá hvernig umsögn einstaklingur hefur fengið áður en maður samþykkir að fá hann til sín. Ef kemur í ljós að einstaklingur er ekki með réttar upplýsingar á síðunni sinni, eða einhver hefur neikvæða reynslu af honum, er sá aðili umsvifalaust rekinn útúr prógramminu. Þetta er auðvitað aldrei 100% öruggt, en það er líka það sem mér finnst svolítið heillandi við þetta, hvernig mismunandi einstaklingar allst staðar að úr heiminum sýna hvor öðrum traust og gestrisni, enda erum við flest eins inn við beinið þrátt fyrir mismunandi menningu, trúarbrögð og lífsreynslu. 

Ég ákvað að gamni að prufa þetta sjálf, enda með þennan fína svefnsófa í stofunni. 
Hér getiði séð prófílinn minn: http://www.couchsurfing.com/people/rakels/

Maður tekur þó enga áhættu þegar kemur að barninu manns og ég ákvað því að láta Diljá alltaf sofa uppí þegar að einhver gistir hér. 
Í augnablikinu er hjá mér 24 ára strákur frá Hollandi. Hann er blaðamaður og er að taka viðtöl útum allan bæ. Hann kom bara í gærkveldi þannig að ég hef lítið náð að tala við hann. 
Í febrúar voru hjá mér par frá Montreal í Canada, þau gistu í 2 nætur. Þau voru rosa hress, elduðu kvöldmat handa okkur Halla og daginn eftir fórum við Diljá að gamni með þeim Gullna hringinn. Þau fylltu bílinn af bensíni, eftir ferðina var ég með hálfan tank og þau spöruðu sér fullt af pening. Svo var þetta rosa gaman, enda ekki á hverjum degi sem maður leyfir sér að taka roadtrip og hafa gaman með Diljá. 

Ég mæli með því að prufa þetta fyrir þá sem hafa áhuga. 
Hérna koma nokkrar myndir síðan að parið frá Canada var hjá mér. 

Steven að elda lasagna:
Halli mættur í dinner:
Malina, Steven og Diljá fyrir framan Eden:
Strokkur að perrast:


Ískalt Dilluskott fyrir framan Strokk:
Brjálaður kuldi hjá Gullfossi:

Ótrúlega fallegt á Þingvöllum:

3 ummæli:

tinns sagði...

þetta er mest sneddý, ótrúlega margir í þessu sem maður þekkir

Nafnlaus sagði...

þetta hljómar ótrúlega skemmtilega :) Þú verður svo bara að vera dugleg að skrifa líka ;)
kv. Eva

Nafnlaus sagði...

Hey ég hitti tvær sænskar stelpur á Aldrei fór ég suður sem komu til íslands á couch surfing :)

Kv.
Hera Brá