laugardagur, 7. nóvember 2009

Skegg og bringuhár óskast

Ég óska eftir bringuhárum og skeggi án endurgjalds. Litur skiptir ekki máli en skeggið verður að vera ágætlega vel snyrt og bringuhárin mjúk og helst mikið af þeim.
Best er að þetta sé áfast við myndalegan og skemmtilegan karlmann í kringum þrítugt.

Endilega hafið augun opin fyrir mig.

Ég skelli þessari auglýsingu ef til vill líka inná Barnaland.is, ég hef heyrt að það sé ansi árangursríkt að auglýsa þar.

3 ummæli:

harpan sagði...

Góð :) heheheh

Toma sagði...

ég er ekki búinn að raka mig í nokkra daga, likamshárid lika. kemur það ekki til greina?

Rakel sagði...

Já, mögulega. Gætum fengið okkur kaffi í vikunni og ég skoða á þér skeggið og bringuna haha :)