föstudagur, 25. september 2009

Tomalegur laugardagur

Mér til mikillar gleði ákvað Toma vinur minn að flytja aftur til Íslands. Ég hitti hann síðast í nóvember útúr dópuð eftir einhvern vitleysing í nauðgunarhugleiðingum, stuttu áður en ég endaði meðvitundarlaus á sjúkrahúsi. Ekki beint fögur minning um mig til að taka með sér út í næstum heilt ár. :/

En strákurinn er kominn til landsins svo ég dró hann
með mér í bæinn, í aðeins betra ástandi en síðast. Eftir að ég hafði dröslað honum í nokkrar búðir lá leiðin í
Iðu, annað heimili Toma, til að fá okkur sushi. Yum
yum yum! Ég verð að viðurkenna að bjórinn minn fór
aðeins of fljótt niður, pottþétt engiferinu að kenna eh...
Aulinn ég hef hingað til ekki getað lært að nota prjóna þannig að Toma tók mig í kennslu. Í leiðinni sýndi hann mér ýmsar aðrar leiðir til að nota prjónana. Hann er svo klár!


Ekki nóg með það heldur splæsti hann líka. Alger herramaður! Reyndar er hann svo mikill
herramaður að mér finnst að það ætti að nefna herramann eftir honum. Hann gæti þá t.d. heitir Herra Toma eða Herra Herramaður. Bara hugmynd...

Því næst lá leiðin í Kronkron þar sem planið var að kaupa mér gallabuxur. Það mígringdi á okkur þannig að áhrif bjórsins voru ekki lengi að fara...sem betur fer. Ég tilkynnti Toma að hann ætti líka að máta þröngar gallabuxur því hann væri pottþétt dead sexy í þeim. Hann tók greinilega
ekki mikið mark á mér því þegar við komum í búðina var hann ekkert að fara að
máta.

Ég: Ég býð þér 1000 kall ef þú mátar þröngar gallabuxur!
T: Nei!
R: 2000 kall!!!
T: Nei!!
R: 3000 kall og ég fæ að taka mynd af þér!!!
T: Kommon, það eru ekki einu sinni til buxur í minni stærð.

Ég labba að næstu afgreiðslugellu: Fyrirgefðu, áttu flottar þröngar gallabuxur í hans stærð?
Hún var ekki lengi að koma með 3 stykki og greyjið Toma gat ekkert gert annað en að hunskast inní mátunarklefa. Tótallí þess virði!!! Kom ekki út þessi svaka töffari með það klípulegan rass að einhver klikk rauðhærð pía þarna inni gat ekki annað en klipið í hann. (Það var alls ekki ég!)

Hvað segiði svo Hot or Not??? (Ef við lítum framhjá þessum yndislegu pósum :)
Hann reyndar keypti þær ekki, því miður, en ég labbaði úr með rosa flottar grænar gallabuxur.

Markmið dagsins hjá mér var að drekka heilan bolla af kaffi. Ég er að reyna að venja mig af þessu rándýra og vibbalega kóki, en einhverstaðar verð ég
að fá koffín fixið mitt. Þá er kaffið eflaust ponkulítið skárra. Ég kippti einum bolla með mér heim og drakk hann allann!!! Svo þið trúið mér...



Sönnunargagn 1!

Sönnunargagn 2!

Það gengur barasta mjög vel og er ég í þessum skrifuðu orðum að sötra kolbikasvart kaffi. Dúleeeg!

Engin ummæli: