mánudagur, 31. ágúst 2009

Bústaðarferð

Síðustu helgi skellti ég mér í hina árlegu bústaðarferð, sem er reyndar orðin aðeins meira en árleg miðað við það að þetta var þriðja ferðin á árinu, síðast fyrir 2 vikum.
Það hefur nú verið venjan að ég mæti annað hvort með nýjan karlmann eða túrista. Ég klikkaði á því síðast. Jafn mikið hugsunarleysi og þegar ég gleymdi að koma með áfengi fyrir 4 árum. Ég er enn minnt á það í hverri einustu bústaðarferð.Ég bætti um betur í þetta skiptið og mætti með karlmann. Ekki nóg
með það heldur kynnti ég hann sem Antonio, túristann minn frá Ítalíu. Ég held þau hafi samt ekki trúað mér. Kannski því hann talaði íslensku allan tímann. Bastard.

Antonio kom með svakalega yfirlýsingu um að hann vinni ALLTAF í party og co. og skoraði á okkur strákar á móti stelpum. Við unnum þá ekki aðeins einu sinni, nei við
unnum þá tvisvar og í annað skipti með 13 hnetur á móti 5. Tapsárir?? Held að myndin hér til hliðar segi það allt. Antonio kemur
ekki með svona yfirlýsingar á næstunni.

Ég held að hápunktur ferðarinnar hafi verið þegar ég lá í pottinum með öll ljós slökkt og horfði uppí stjörnuhimininn. Ég sá 4 stjörnuhröp, þó nokkur stjörnumerki sem ég veit ekkert nöfnin á og örugglega 15 gervitungl. Mæn gott hraðinn á þessu!!! Eitt var að elta flugvél. Það náði henni samt ekki.
Rómantískt?? Ég ætti kannski að minnast á það að í pottinum voru líka 3 drukknir og strompreykjandi karlmenn. Einn þeirra reyndi meira að segja að reka mig uppúr því hann ætlaði að taka ólympíska dýfu ofaní pottinn. Ég er ekki frá því að ég hafi bjargað lífi hans með því að neita að fara uppúr.

Það er svo sniðugt með bústaði sem eru með heitan pott að svo oft þarf að labba í gegnum baðherbergið til að komast að pottinum. Það býður nú bara uppá strippshow.
Hr. R labbaði inná Hr. G hafa hæðgðir. Honum brá svo að hann hellti úr glasinu sínu yfir öxlina á Frk. E.
Seinna labbaði Hr. G inná Hr. R á sprellanum að skipta um föt. Frk. E brá svoldið og ætlaði að hylja sprellann fyrir Hr. R.
Hr.R sagði þá að þetta væri allt í lagi, ef þeir væru staddir í sundi á Selfossi þá mundi hann sjá þetta allt saman hvort sem er.Hr. G tók sér þá smá tíma í að skoða sprellann á Hr.
R.

Antonio komst að því að það ef maður skvettir köldu vatni á mann með slöngu þá endar maður blautur í gegn.


Við söknuðum Toma. Það mokar enginn snjó eins og Toma. Það fer heldur enginn útí móa og týnir blóðberg í blóðbergssósu nema Toma. Við komumst að því að Toma kann allt.
Eins og Gosi orðaði það: Ef ég væri staddur á eyðieyju og mætti aðeins taka eitthvað eitt með mér, þá mundi ég taka Toma.

Ég verð að segja að ég hafi fengið væg
t áfall þegar ég
staulaðist framúr á sunnudaginn. Það voru ALLIR í köflóttum náttbuxum nema ég, mínar voru með blómum. Shit hallærisleg!! Sem betur fer tók samt enginn eftir því, ég var nefnilega í svo hnökruðum sokkum sem stálu allri athyglinni. Ef þið hélduð að það væri í lagi að vera í hnökruðum sokkum því þeir eru úr ull þá er svarið nei!! Það er ekki í boði.Við græddum ókeypis G-streng sem var búinn að gerjast undir sófa. Það vildi samt enginn eiga hann. Vanþakklæti!!

Ég verð að segja að helgin hefði bara alls ekki verið jafn....áhugaverð, ef ekki hefði verið fyrir harmónikkuleik Rolla. Hann kann aðeins eitt lag, gekk ég yfir sjó og land, og spilaði það af mikilli list aftur og aftur og aftur og aftur....
Hann fær þó prik fyrir þessa fínu tilraun til að spila undir með útvarpinu.
Eins og vanalega vill bloggsíðan ekki taka videoum uppréttum....


Ég er farin að afhnökra sokkana mína. Cheers, Rakelita.

2 ummæli:

harpan sagði...

vitt kvitt fyrir góðum pistli :)

Nafnlaus sagði...

Hahaha tapsáru strákar! - Magga