Samtal hjá kellunum á kaffistofunni:
A: Hey, horfðuð þið á klám í gær?
B: Nei, ég er ekki enn búin að sjá klám, það eru allir að tala um þessa þætti.
C: Nei, æj ég horfi svo lítið á sjónvarp.
A: Já, þú verður að kíkja á klám!
Ég fattaði nú að þær voru að tala um Klovn, en ég heyrði samt klám í hvert skipti og gat hreinlega ekki falið glottið.
Sigga (sem situr við hliðiná mér) í símann í dag:
Good morning, Mr. Nipples??
Ég sprakk úr hlátri og Sigga greyið starði á mig á sama tíma og hún var að reyna að heyra í gaurnum sem hét svo víst Mr. Nicholes. Ég þurfti að sjá það skrifað.
Sigga aftur að lesa upp heimilisfang: 232 Tramp street...
Aftur sprakk ég úr hlátri. Veit ekkert hvað heimilisfangið var, en vonandi ekki Tramp street.
Er með David og Sleep alone með Bat for Lashes á repeat þessa dagana, þökk sé Davíð. Mæli með Two Suns plötunni þeirra.
Fékk líka allt í einu þetta lag á heilann...
1 ummæli:
Ég elska þetta lag.. í alvörunni!
Kv. Valla
Skrifa ummæli